Fasteignaleitin
Skráð 8. des. 2025
Deila eign
Deila

Reykjamörk 13

EinbýlishúsSuðurland/Hveragerði-810
147.6 m2
4 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
84.500.000 kr.
Fermetraverð
572.493 kr./m2
Fasteignamat
69.350.000 kr.
Brunabótamat
60.750.000 kr.
Mynd af Ragnar Kristján Guðmundsson
Ragnar Kristján Guðmundsson
Fasteignasali
Byggt 1967
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Gæludýr leyfð
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2210803
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað / Þarfnast skoðunar
Raflagnir
Ekki vitað / Þarfnast skoðunar
Frárennslislagnir
Ekki vitað / Þarfnast skoðunar
Gluggar / Gler
Þarfnast skoðunar
Þak
Þak yfir bílskúr er ekki einangrað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Ofnar
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
***Athygli er vakin á því að fasteignasali hvetur kaupendur til að kynna sér eignina vandlega. Vakin er athygli á gólfi, mögulegum halla og ástandi eignar. Kaupendur eru því hvattir til að kynna sér eignina vandlega.
Ragnar Guðmundsson, löggiltur fasteignasali, hjá fasteignasölunni TORG kynnir: 5 herbergja einbýlishús til sölu *Sólarsæluna húsið Rósakot*. Húsið sjálft er rúmgott og bjart einbýlishús á einni hæð við Reykjamörk 13 í Hveragerði. Í næstu götu er barnaskóli. Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 147,6 fm og þar af er bílskúr 29,3 fm. 
Skiptist eignin í rúmgott anddyri/hol, stórt eldhús með nýlegri innréttingu með góðum borðkrók, rúmgóða stofu með góðu borðstofuplássi og útgengt í garð með U-laga/skjólgefandi sólaraðstöðu, heitum potti og gróðurhúsi, svefnherbergisgang, 4 svefnherbergi, 1. baðherbergi, þvottaherbergi (ein af. forstofum eignar) og bílskúr. Í bílskúr er bakherbergi sem búið er að innrétta sem vinnuherbergi. Rúmgóð innkeyrsla, gróin garður og lóð umlykur húsið. Í bakgarði er hellulögð verönd með heitum potti. Skemmtileg eign í góðu hverfi í Hveragerði. Barnaskóli í næstu götu og stutt er í leikskóla, sundlaug og alla helstu þjónustu. Auk þess eru fallegar gönguleiðir í næsta nágrenni. 

Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 844-6516 eða með tölvupósti: ragnar@fstorg.is

Nánari lýsing:
Anddyri / forstofa: Komið er inn í rúmgott flísalagt anddyri með ljósum flísum á gólfi.
Eldhús: Rúmgott og bjart eldhús búið dökkri innréttingu með viðaráferð og góðu skápaplássi. Helluborð, ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur. Góður bjartur borðkrókur með plássi fyrir eldhúsborði. Gluggar með opnanlegu fagi og flísar á gólfi. Úr eldhúsi er innangengt í þvottaherbergi með sérinngangi.
Stofa / Borðstofa: Stofurnar eru í rúmgóðu og björtu alrými með parketi á gólfi. Stórir gluggar birta upp stofuna og útgengt er um stóra rennihurð á hellulagða verönd með heitum potti.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi: Að undanskildu hjónaherbergi eru þrjú svefnherbergi. Öll með parketi á gólfum.
Baðherbergi: Innréttað með hvítri innréttingu með handlaug og speglaskáp. Upphengt salerni, handklæðaofn og sturtuklefi. Dúkur á gólfi. Gluggi með opnanlegu fagi. 
Þvottaherbergi: Úr eldhúsi er innangengt í þvottaherbergi með sérinngangi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi með opnanlegu fagi. 
Bílskúr og innkeyrsla: Bílskúrinn er skráður 29,3 fm og búinn bakherbergi sem hefur verið innréttað sem vinnuherbergi. Rúmgóð innkeyrsla.
Garður/Lóð: Garðurinn er gróinn og fallegur. Að baka til er hellulögð verönd með heitum potti og er gróðurhús í garðinum.

Vel skipulögð og falleg fjölskyldueign á vinsælum og grónum stað í Hveragerði þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, útivist og alla helstu þjónustu og verslanir. 
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 844-6516 eða með tölvupósti: ragnar@fstorg.is

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Gjaldskrá birt með fyrirvara.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.




 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
20/05/202141.100.000 kr.57.000.000 kr.147.6 m2386.178 kr.
05/08/202039.100.000 kr.49.000.000 kr.147.6 m2331.978 kr.
29/11/201722.600.000 kr.30.000.000 kr.147.6 m2203.252 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 1987
29.3 m2
Fasteignanúmer
2210803
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.000.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langahraun 10
Bílskúr
Skoða eignina Langahraun 10
Langahraun 10
810 Hveragerði
133.3 m2
Parhús
514
622 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina HRAUNBÆR 41
Bílskúr
Skoða eignina HRAUNBÆR 41
Hraunbær 41
810 Hveragerði
143.3 m2
Raðhús
312
578 þ.kr./m2
82.800.000 kr.
Skoða eignina BIRKIMÖRK 6
Skoða eignina BIRKIMÖRK 6
Birkimörk 6
810 Hveragerði
152.8 m2
Raðhús
312
543 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina DALSBRÚN 31
Skoða eignina DALSBRÚN 31
Dalsbrún 31
810 Hveragerði
130.6 m2
Parhús
514
665 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin