Fasteignaleitin
Skráð 2. sept. 2024
Deila eign
Deila

Engjaland 4

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
92.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
73.600.000 kr.
Fermetraverð
797.400 kr./m2
Fasteignamat
23.250.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Guðný Þorsteinsdóttir
Guðný Þorsteinsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2024
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2527210
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
St+málmur
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Suður
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
4 - Fokheld bygging
NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 EÐA GUDNYTH@REMAX.IS

RE/MAX ásamt GUÐNÝJU ÞORSTEINS löggiltum fasteignasala kynnir í einkasölu: Engjaland 4, íbúð 202, björt og falleg þriggja herbergja íbúð á annari hæð með yfirbyggðum svölum í lyftuhúsi með einkabílastæði fyrir framan húsið í vandaðri nýbyggingu fyrir 55 ára og eldri. Íbúðinni verður skilað fullfrágengin með gólfefnum. Íbúðin er tilbúin til afhendingar nóvember 2024. Frekari upplýsingar um bygginguna er að finna á  Engjaland.is

SMELLTU HÉR OG SJÁÐU KYNNINGU Á ÞESSUM FALLEGU EIGNUM
SMELLTU HÉR OG FÁÐU SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS


Eignin samanstendur af: Forstofu, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi með þvottavéla-innréttingu, eldhúsi og stofu sem eru í samliggjandi flæðandi rými með útgangi út á stóra yfirbyggðar svalir. Einkabílastæði fyrir framan húsið ásamt geymslu. Gólfefni eru vínilparket og flísar í votrýmum.
Samkvæmt Fasteignamati Ríkisins er íbúðin samtals 92,3m3 þar af er geymsla í sameign 9,4m2. Yfirbyggðar svalir eru 17,8m2 .

Nánari lýsing:
Forstofa: Er með fataskápum sem ná upp í loft.
Herbergi I: Gæti notast sem gestaherbergi eða skrifstofa.
Herbergi II: Er rúmgott með fataskápum sem ná upp í loft, innangengt er á sér baðherbergi.
Baðherbergi: Er flísalagt með steini á borði, vaski með skúffum undir, rúmgóðri "walk in" sturtu, upphengdu salerni ásamt þvottavéla-innréttingu. 
Eldhús/borðstofa: Undir efri skápum er innfræst led- lýsing, á borðplötum í er steinn sem heitir Meteor Ice frá S. Helgasyni. Í innréttingunni eru vönduðum tæki af gerðinni AEG frá Ormsson, blástursofni, innbyggðri uppþvottavél, innbyggðum kæliskáp með frysti ásamt span helluborð með viftu fyrir ofan. Borðstofan er rúmgóð í opnu og björtu rými.
Stofa/alrými: Er einnig í björtu alrými með útgangi á stóra yfirbyggðar svalir.
Geymsla: Er 9,4m2- nr.0010.
Bílastæði: Einkabílastæði er fyrir framan húsið.
Íbúðinni fylgja ýmis þægindi:  
Í íbúðinni er sérstakt loftræstikerfi sem bætir loftgæði og tryggja rétt loftskipti. Innfelld lýsing í öllum rýmum. Litaval á innréttingum er virkilega fallegt og milt.  Allar íbúðir eru með sérmerkt bílastæði þar af fjórar íbúðir með sérmerkt bílastæði fyrir utan bygginguna og 10 íbúðir með sérmerkt stæði í bílakjallara byggingarinnar. Á bílaplani fyrir utan bygginguna eru 19 bílastæði þar af tvö sérmerkt fyrir hreyfihamlaða.
Þetta er björt og falleg eign með öllum helstu þægindum nútímans

Byggingaraðili: RENY ehf
Byggingarstjóri: Húsaverk ehf
Iðn- og lýsingahönnuður: Sólveig Andersen
Hönnun húss og lóðahönnun: Pro-Ark teiknistofa
Verkfræðihönnun: Verkfræðistofan Hnit
Raflagnahönnun: Rafhönnun ehf

Kaupandi greiðir 0,3 % skipulagsgjald sem er innheimt þegar endanlegt brunabótamat liggur fyrir. 

Ítarlegri upplýsingar veitir Guðný Þorsteins. í s:771 5211 eða gudnyth@remax.is 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Engjaland 4
55 ára og eldri
Skoða eignina Engjaland 4
Engjaland 4
800 Selfoss
93.2 m2
Fjölbýlishús
312
792 þ.kr./m2
73.800.000 kr.
Skoða eignina Engjaland 4
55 ára og eldri
Skoða eignina Engjaland 4
Engjaland 4
800 Selfoss
89.2 m2
Fjölbýlishús
312
800 þ.kr./m2
71.400.000 kr.
Skoða eignina Engjaland 4
55 ára og eldri
Skoða eignina Engjaland 4
Engjaland 4
800 Selfoss
90.8 m2
Fjölbýlishús
312
800 þ.kr./m2
72.600.000 kr.
Skoða eignina Engjaland 2 íb. 203
55 ára og eldri
Engjaland 2 íb. 203
800 Selfoss
93.2 m2
Fjölbýlishús
312
789 þ.kr./m2
73.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin