Skráð 13. feb. 2026

Sambyggð 20, íbúð 0202

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
74.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
55.500.000 kr.
Fermetraverð
745.968 kr./m2
Fasteignamat
34.750.000 kr.
Byggt 2025
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2535513
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Vestursvalir
Lóð
5,63
Upphitun
ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir:  Sambyggð 20, íbúð 0202, Þorlákshöfn. Ný, falleg, 74,4m2 miðjuíbúð á 2.hæð með 2 stórum svefnherbergjum og góðri geymslu innan eignar.  Íbúðin er með sér inngang af svalagang með gleri.  Úr stofunni er utangengt á góðar svalir með gleri sem snúa í vestur.
HLUTDEILDARLÁN Í BOÐI.
Húsinu fylgir stór, lokuð hjóla- og vagnageymsla. 
26, malbikuð, bílastæði eru við húsið, þar af 2 fyrir hreyfihamlaða, og reiðhjólaskýli. 
2 rafhleðslustöðvar verða við húsið.  
Fyrir framan húsið eru hellulagðar stéttar með snjóbræðslukerfi.  

** Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com **

Eignin telur:
* Rúmgóða forstofu með stórum skáp.  
* Glæsilega stofu og eldhús í opnu rými.  Úr stofunni er utangengt á svalir með gleri sem snúa í vestur.
Í eldhúsi er falleg, sérsmíðuð innrétting frá Selós, vönduð AEG heimilistæki með sjálfhreinsandi ofni, spanhelluborði, viftu, innbyggðri uppþvottavél og kæli-/frystiskáp.   
* 2 stór svefnherbergi.  Góðir fataskápar eru í  öllum herbergjum. 
* Glæsilegt baðherbergi með sérsmíðaðri innréttingu frá Selós,  upphengdu wc og sturta með sturtugleri og flísalögðum botn. Á  gólfi og 2 veggjum eru vandaðar 60x60 flísar gráar að lit.
* Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara (barkalausum) á baðherberginu á snyrtilegan hátt.

* Á öllum gólfum, nema baðherbergi, er eikar vínyl parket af vandaðri gerð.  Innihurðar eru hvítar, yfirfelldar, með svörtum hurðarhúnum.  

*  Við húsið er stór, sameiginleg,  lokuð hjóla- og vagnageymsla.  

*  Gangstéttar næst húsi og gangstígar á lóð verða steypt eða hellulagt, snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið og að sorpgeymslu. 
Að öðru leyti verður lóð frágengin með þökum.

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina:
Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Super 1 pizz
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sambyggð 20, íbúð 0204
Sambyggð 20, íbúð 0204
815 Þorlákshöfn
74.4 m2
Fjölbýlishús
312
746 þ.kr./m2
55.500.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 16, íbúð 0201
Hnjúkamói 16, íbúð 0201
815 Þorlákshöfn
80.1 m2
Fjölbýlishús
312
710 þ.kr./m2
56.900.000 kr.
Skoða eignina Sambyggð 20, íbúð 0203
Sambyggð 20, íbúð 0203
815 Þorlákshöfn
74.4 m2
Fjölbýlishús
312
746 þ.kr./m2
55.500.000 kr.
Skoða eignina Sambyggð 20, íbúð 0104
Sambyggð 20, íbúð 0104
815 Þorlákshöfn
74.4 m2
Fjölbýlishús
312
746 þ.kr./m2
55.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin