Fasteignaleitin
Opið hús:11. okt. kl 13:00-13:30
Skráð 12. sept. 2024

Eskiás 6 íbúð 301

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
112.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
890.374 kr./m2
Fasteignamat
87.600.000 kr.
Brunabótamat
67.600.000 kr.
SS
Sunna Sigurjónsdóttir
Lögfræðingur og löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
3. hæð · efsta
Garður
Svalir
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2530213
Landnúmer
231031
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýlegar*
Raflagnir
Nýlegar*
Frárennslislagnir
Nýlegar*
Gluggar / Gler
Nýlegir*
Þak
Nýlegt*
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasalan TORG kynnir í einkasölu fallega 4ra herbergja íbúð með sérinngangi í nýlegu fjölbýli við Eskiás 6 í Garðabæ. Húsið er byggt árið 2025*. Eignin telur anddyri, eldhús og stofu í stóru alrými, 3 rúmgóð svefnherberg, eitt þeirra er með fataherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Geymslurými undir stiga innan íbúðar og sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign.

Frekari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Sunna Sigurjónsdóttir, lögfræðingur og lögg. fasteignasali í GSM: 845-0517 eða sunna@fstorg.is.


Nánari lýsing:
Andyrri/forstofa: Gengið er inn í íbúð á 2. hæð í húsinu.  Steyptur stigi með grábrúnu teppi leiðir upp á efri hæð (3. og efstu hæð). Ljóst harðparket á gólfi í anddyri ásamt fataskápi. Geymslurými undir stiga. Dyrabjalla og póstkassi er við hvern sérinngang.
Stofa/borðstofa: Björt með aukinni lofthæð og miklu útsýni til norðurs. Útgengt á norð-vestur svalir. Ljóst harðparket á gólfi.
Eldhús: Ljósgrá innrétting, eldhúseyja, spanhelluborð, bakaraofn í vinnuhæð, gott skápa/skúffupláss, innbyggður ísskápur fylgir. Tengi fyrir uppþvottavél og frontur fylgir. Ljóst harðparket á gólfi. Innréttingar í eldhúsi eru af vandaðri gerð frá NOBILIA.
Svefnherbergi 1: 4,9 fm fataherbergi inn af  12,8 fm hjónaherbergi með góðu skápaplássi. Ljóst harðparket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott 11,1 fm, fataskápur og ljóst harðparket á gólfi.
Svefnherbergi 3:  Rúmgott 9,7 fm, fataskápur og ljóst harðparket á gólfi.
Baðherbergi/þvottaherbergi: Falleg hvít innrétting. Upphengt klósett, sturta, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísalagt í hólf og gólf. Baðherbergi/þvottahús eru forframleidd og hífð inn í hús samhliða uppsteypu húsanna. Söluaðili baðherbergjanna er Wilbergs/Bitter ehf. (Parki) og eru þau hönnuð af Boxen samkvæmt norskum stöðlum. Mikið er lagt upp úr vönduðum frágang og er allt efni og búnaður af þekktri og viðurkenndri gerð.

Bílastæði eru á lóð ásamt rafhleðslustöðvum.  Allar íbúðir eru með aðgengi að inngarðinum sem býr til skjólsælan reit fyrir íbúa Eskiás. Íbúðirnar eru hannaðar til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra innan íbúða. Viðhaldslítil klæðning á húsum og lágmarkssameign tryggir hagkvæman rekstur íbúða. Eskiásinn er í miðju grónu hverfi með alla þjónustu í næsta nágrenni. Skólar, verslun og þjónusta eru allt í kring.

Nánar um eignina:
Gólfefni: 11 mm harðparket frá Swiss Krono AC5, OAK grey, með undirlagi, hvítir gólflistar, eru á öllum rýmum nema stiga og baðherbergi. Harðparket er frá Birgisson. Gólfteppi á stiga er African spirit frá Parket og gólf. 
Gardínur: Rúllugardínur í öllum gluggum frá Álnabæ nema einu svefnherberginu en þar er dökk myrkragardína frá IKEA. 
Innréttingar og hurðir: Innréttingar í eldhúsi eru af vandaðri gerð frá NOBILIA og fataskápar frá Trésmiðju GKS. Innihurðir hvítlakkaðar yfirfelldar hurðir (Jeld-Wen Moralt).
Hreinlætistæki: Öll hreinlætistæki eru að vandaðri gerð frá Grohe. Á baðherbergjum eru tækin krómlituð en í eldhúsi eru vaskur og blöndunartæki svört 
Klæðning utanhús: Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með svartri álbáru, kopargrænum sléttum plötum (Alpolic FR 4mm) og jarðlituðum sementsplötum (Equitone). Allt klæðningarefni og undirkerfi klæðninga kemur frá Málmtækni. Svalahandrið eru úr stáli klætt lóðréttum bambus renningum. Útiljós og rafmagnstengill er á svölum.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/06/202577.300.000 kr.96.900.000 kr.112.2 m2863.636 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (49)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lautargata 5 íb. 201
Lautargata 5 íb. 201
210 Garðabær
89,9 m2
Fjölbýlishús
312
967 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Vefarastræti 7-9
Bílastæði
Hleðslustöð
Vefarastræti 7-9
270 Mosfellsbær
102,1 m2
Fjölbýlishús
413
822 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurhella 14 íb. 201
Suðurhella 14 íb. 201
221 Hafnarfjörður
123,1 m2
Fjölbýlishús
413
646 þ.kr./m2
79.500.000 kr.
Skoða eignina Suðurhella 14
Skoða eignina Suðurhella 14
Suðurhella 14
221 Hafnarfjörður
123,1 m2
Fjölbýlishús
413
646 þ.kr./m2
79.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin