Skráð 29. jan. 2026

Valshlíð 5

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
121 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
118.900.000 kr.
Fermetraverð
982.645 kr./m2
IF
Irpa Fönn Hlynsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Aðgengi fatl.
Fasteignanúmer
2532608
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi
Matsstig
U - Leyfi útrunnið

Hlíðarhorn.is kynnir Valshlíð 5 - Íbúð 213.

Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin afhendist fullbúin við kaupsamning.

Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.

S8 ehf. býður fjölbreyttar leiðir til að eignast eða flytja í nýtt og glæsilegt heimili á frábærum stað í miðborginni. Skoðaðu hvað leiðir eru í boði á s8.is eða sendu fyrirspurn á s8@s8.is eða hlidarhorn@s8.is. Þú getur líka hringt í síma 4152500 og fengið allar upplýsingar um íbúðina, bókað skoðun beint í Hlíðarhorni, mátað íbúðina og við finnum þá leið sem hentar þér best.

Björt og rúmgóð 4ja herbergja íbúð á 2. hæð á suðurhlið Hlíðarhorns. Birt stærð er 121 fm þar af 9 fm geymsla í kjallara. Íbúðin er gegnumlýst og skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, gang, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, gæðaraftækjum frá Siemens, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 2.

Nánari lýsing: Í rúmgóðu anddyri er góður fataskápur. Gengið er inn í alrými með eldhúsi og stofu/borðstofu með útgengi á suðursvalir og gólfsíðum glugga. Eldhús er með eyju. Ljós eldhúsinnrétting, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa. Blöndunartæki úr burstuðu stáli. Rúmgott og bjart hjónaherbergi með góðum fataskápum. Tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, ljós innrétting og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki úr burstuðu stáli. Þvottaherbergi er með ljósri innréttingu, leirljósum gólfflísum og vaski. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara er í vinnuhæð í innréttingu. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0059. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

ATH: Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Á heimasíðu Hlíðarhorns, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu byggingaraðila og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir úr auglýstri íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Valshlíð 3
Skoða eignina Valshlíð 3
Valshlíð 3
102 Reykjavík
103.4 m2
Fjölbýlishús
312
1053 þ.kr./m2
108.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 3
Skoða eignina Valshlíð 3
Valshlíð 3
102 Reykjavík
116.7 m2
Fjölbýlishús
413
1002 þ.kr./m2
116.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 3
Skoða eignina Valshlíð 3
Valshlíð 3
102 Reykjavík
111.4 m2
Fjölbýlishús
413
1022 þ.kr./m2
113.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 1
Skoða eignina Valshlíð 1
Valshlíð 1
102 Reykjavík
119.2 m2
Fjölbýlishús
413
1006 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin