Fasteignaleitin
Skráð 8. nóv. 2025

Funafold 32

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
224 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
153.900.000 kr.
Fermetraverð
687.054 kr./m2
Fasteignamat
130.700.000 kr.
Brunabótamat
115.300.000 kr.
Byggt 1988
Garður
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2042219
Landnúmer
110149
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Frá því að húsið var byggt
Raflagnir
Frá því að húsið var byggt
Frárennslislagnir
Frá því að húsið var byggt
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Sagt í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Nýtt á skrá! Funafold 32 Reykjavík
Bókið skoðun í tara@fastlind.is / 847-8584

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallegt og vandað 5-6 herbergja 224,0 fermetra raðhús í raðhúsalengju á frábærum og fjölskylduvænum stað við Funafold 32 í Reykjavík. Í húsinu eru 4 svefnherbergi, gestasnyrting, baðherbergi, stór stofa/borðstofa, sjónvarpsstofa, eldhús, þvottaherbergi og tvöfaldur bílskúr. Húsið er afar sjarmerandi og með góðum gluggum til suðurs inn í bakgarð í stofu. Útgengi frá stofu í skjólgóðan bakgarð og frá hjónaherbergi á svalir til suðurs með fallegu útsýni út á sundin.

Gengið í skjólgóðan bakgarð til suðurs frá stofu þar sem tyrfð flöt tekur við viðar verönd með heitum potti. Fallegur gróður á lóðarmörkum. Svalir til suðurs inn í bakgarð frá efri hæð með afar fallegu útsýni. Hellulögð stétt er fyrir framan hús og bílskúr með snjóbræðslu. Beð með fallegum gróðri eru við inngang hússins.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu fjölskylduhverfi í Foldahverfi í Reykjavík þar sem stutt er í grunnskóla og leikskóla. Frábærar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni, m.a. við Grafarvoginn, Elliðaárvoginn, meðfram Grafarvogi upp að Geldingarnesi og víðar. Stutt er í helstu stofnæðar þar sem hverfið er afar vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. 

Nánari lýsing:

Neðri hæð:
Forstofa: Er rúmgóð, með flísum á gólfi, aukinni lofthæð og góðum skápum.
Gestasnyrting: Er staðsett við forstofu. Flísar á gólfi og veggjum. Upphengt salerni og vaskur.
Þvottaherbergi: Er rúmgott með flísum á gólfi og innréttingu með góðu skápaplássi. Mikil lofthæð, vinnuborð og vaskur er í þvottaherbergi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr: Er tvöfaldur, 35,7 fermetrar, með tveimur innkeyrsluhurðum. Innangengt frá forstofu. Flísar á gólfi og rúmgott geymsluloft yfir hluta. Vaskur og heitt/kalt vatn.
Stofa: Gengið niður nokkur þrep frá forstofu niður í stofu/eldhús. Stofa er stór, með parketi á gólfi og gluggum til suðurs. Stofa rúmar mjög vel setustofu og borðstofu. Fallegur arinn í stofu og útgengi í bakgarð hússins.
Eldhús: Með flísum á gólfi og fallegri viðar eldhúsinnréttingu. Bakaraofn og örbylgjuofn, tengi fyrir uppþvottavél og keramik helluborð. Stæði fyrir tvöfaldan kæliskáp og borðkrókur. Gluggi til suðurs. 
Sjónvarpsrými: Er staðsett inn af stofu við hlið eldhús. Parket á gólfi.

Efri hæð: 
Gangur: Með parketi á gólfi, mikilli lofthæð og gluggum til norðurs sem hleypa inn skemmtilegri birtu.
Hjónaherbergi: Er rúmgott, með parketi á gólfi og góðu skápaplássi. Aukin lofthæð og gluggar til suðurs. Útgengi á svalir frá hjónaherbergi.
Svalir: Snúa til suðurs inn í bakgarð hússins. Afar fallegt útsýni er frá svölum yfir Bryggjuhverfið í Grafarvogi og út á sundin.
Svefnherbergi II: Er rúmgott með parketi á gólfi, aukinni lofthæð og gluggum til suðurs.
Svefnherbergi III: Með parketi á gólfi, aukinni lofthæð, skápum og glugga til suðurs. 
Svefnherbergi IV: Með parketi á gólfi, aukinni lofthæð, skápum og glugga til suðurs. 

Nánari upplýsingar:
Tara Sif Birgisdóttir, lögg. fasteignasali / tara@fastlind.is / 847-8584
Heimir Hallgrímsson, lögg. fasteignasali / heimir@fastlind.is / 849-0672
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stuðlasel 27
3D Sýn
Opið hús:02. sept. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Stuðlasel 27
Stuðlasel 27
109 Reykjavík
224.3 m2
Fjölbýlishús
314
606 þ.kr./m2
135.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 313
Hleðslustöð
Opið hús:30. ágúst kl 13:00-13:30
laugarborg 313.jpg
Skoða eignina Laugaborg 313
Laugaborg 313
105 Reykjavík
118 m2
Fjölbýlishús
312
1016 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 0420
Hleðslustöð
Opið hús:30. ágúst kl 13:00-13:30
laugaborg 420 .jpg
Skoða eignina Laugaborg 0420
Laugaborg 0420
105 Reykjavík
112.1 m2
Fjölbýlishús
312
1007 þ.kr./m2
112.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 6
Screenshot 2026-07-17 at 16.18.54.jpeg
Skoða eignina Hringhamar 6
Hringhamar 6
221 Hafnarfjörður
152.8 m2
Fjölbýlishús
524
717 þ.kr./m2
109.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin