BJÖRT OG FALLEG 3JA HERB. 103 FM. ÍBÚÐ Á JARÐHÆÐ MEÐ SÉR INNGANGI OG AFGIRTRI VERÖND Á ÞESSUM VINSÆLA STAÐ Í GRAFARVOGI.Samkvæmt skráningu HMS, fasteignaskrá er birt flatarmál eignarinnar 103,0 fm.Um er að ræða fallega og rúmgóða íbúð með sérinngangi á jarðhæð í fjölbýlishúsi byggðu árið 1999 með góðum innréttingum og afgirtri verönd með fram íbúðinni til suðurs.
Gengið er inn í rúmgóða forstofu, inn af henni er alrými sem er opið í stofuna sem er beint inn af inngangi, til vinstri er eldhúsið og svefnálman með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum og er baðherbergið á milli herbergjanna. Til hægri við inngang er þvottahúsið og geymslan. Sama parketið er á allri íbúðinni, nema á baðherberginu. Gengið er út á veröndina úr stofunni. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er við hlið íbúðarinnar.
Forstofa/hol: Mjög rúmgóð forstofa með fataskáp og parket á gólfum.
Stofa/borðstofa: Stofurnar eru bjartar og rúmgóðar með parketi á gólfum. Útgangur út á rúmgóða verönd úr stofu.
Eldhús: Falleg hvít innrétting með góðum skápaplássi, span helluborð, ofnar í vinnuhæð og parket á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott og flísalagt, góðar innréttingar við handlaug, walk-in sturta, upphengt salerni og handklæðaofn.
Svefnherbergin: Parket á gólfum og rúmgóð herbergi með góðu skápaplássi.
Þvottahús/geymsla: Gott aðgengi innan íbúðar, skápar og þvottavélapláss í vinnuhæð, parket á gólfum.
Verönd: Sér um 24 fm. afgirt verönd til suðurs.
- Ljósleiðari er kominn inn í íbúðina.
- Sér merkt bílastæði fylgir íbúðinni, en búið er að setja upp rafhleðslustöðvar við húsið.
Að sögn eigenda hefur eignin fengið gott viðhald í gegnum tíðina; fyrir árið 2019 var öll íbúðin tekin í gegn - nýtt parket, eldhúsinnrétting, baðherbergi, fataskápar og hurðar. Árið 2020 var geymslan parketlögð og innrétting sett inn til að hafa þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Árið 2022 var húsið var sílanborið að utan, þak og gluggar málaðir og áfellur settar á milli húsanna (Gautavík 17 og 19). Árið 2025 var skipt um glugga í hjónaherberginu. Árið 2026 voru þakrennur og loftstokkar hreinsaðir, skipt um svalahurð og glugga í stofu.
Hér er um að ræða vel skipulagða og fallega íbúð á góðum og barnvænum stað í Grafarvogi, stutt í helstu þjónustu, leik-, grunn- og framhaldsskóla, verslun (Spöngina) og þjónustusvæði.Allar nánari uppl. og skoðun veitir:
Jóhann Friðgeir, lgf. GSM: 896-3038 e-mail:
johann@hofdi.is