Pálsson fasteignasala kynnir Ljárskógaströnd 1, Dalabyggð – glæsilegt heilsárshús á einstökum stað við sjávarsíðuna og óhindrað útsýni út á Hvammsfjörð.Um er að ræða fallegt og vandað 147m
2 heilsárshús ásamt 60m
2 bílskúr með 5 metra breiðri hurð, staðsett á 15.600m
2 eignarlóð með óhindruðu útsýni yfir Hvammsfjörð.
Húsið skiptist í 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi og bjart og rúmgott alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Gólfsíðir gluggar eru nánast á allri hlið alrýmisins sem rammar inn stórbrotið útsýni yfir fjörðinn og tengja innanrýmið við óspillta náttúru á einstakan hátt.
Að utan er húsið klætt með lerkiklæðningu sem veðrast náttúrulega og þarfnast því ekki að borið sé á viðinn. Að innan eru veggir og loft klædd með furuklæðningu sem gefur eigninni hlýlegt og notalegt yfirbragð.
Á lóðinni stendur 60m
2 geymsluskúr með 5 metra breiðri hurð sem býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir t.d. geymslu á tækjum og búnaði fyrir áhugamál eða vinnuaðstöðu.
Eignin stendur á friðsælum og fallegum stað þar sem náttúran, kyrrðin og útsýnið fá að njóta sín til fulls. Búðardalur er í aðeins 6,4 km fjarlægð, þar sem alla helstu þjónustu er að finna.
Hér er um að ræða einstaka eign fyrir þá sem leita að vandaðri heilsárseign í stórbrotnu umhverfi, þar sem hægt er að upplifa sjóinn, útsýnið og íslenska náttúru eins og hún gerir sig best.**Athygli er vakin á því að einni mynd hefur verið breytt með aðstoð tölvutækni til að sýna fyrirhugaða hellulagða verönd fyrir framan húsið.Nánari upplýsingar veitir:
Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.