SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *VEL SKIPULÖGÐ 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á JARÐHÆÐ* *52FM SÉRGARÐUR MEÐ HEITUM POTTI OG 20FM SVALIR* *GLÆSILEGUR SUNDLAUGARGARÐUR* *2KM Í LA ZENIA BOULEVARD OG VILLAMARTIN GOLF, 4KM Á STRÖND* *VÖNDUÐ SAMEIGN, SÉRSTÆÐI OG GEYMSLA*Vönduð 3ja herbergja íbúð á frábærum stað á La Zenia svæðinu, stutt frá Villamartin golfvellinum, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Ca. 20 mín göngufæri á fallega strönd og 15 mín. göngufæri í La Zenia Boulevard, nýju og flottu verslunarmiðstöðina. Örstutt göngufæri í Los Dolses þjónustukjarnann, þar sem er gott úrval veitingastaða og verslana. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast flotta íbúð í frábæru umhverfi í hinu vinsæla kryddhverfi í Villamartin.
Allar upplýsingar veitir:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is, sími 0034 615 112 869Nánari lýsing:
Um er að ræða nýlegt lyftuhús. Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum með skápum og tveimur baðherbergjum. Eldhús og stofa eru í björtu opnu rými og eigninni fylgir 52 fm sérgarður með heitum potti, ásamt 20 fm svölum. Geymsla og þvottahús er innan íbúðar. Eigninni fylgir sérmerkt stæði á lokaðri lóð. Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Glæsileg sameign með sundlaugum. Góð leikaðstaða fyrir börnin. Rafdrifin gluggahleri í stofu, gólfhiti í baðherbergjum, flugnanet í gluggum. Öryggiskerfi.
Falleg hvít sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í stuttu göngufæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.
Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri, t.d. í Los Dolces og La Zenia Boulevard, sem ný og glæsileg miðstöð verslana, veitingastaða og fjölbreyttrar afþreyingar. Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.
Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast glænýja og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá öllu því sem gerir dvölina á Spáni skemmtilega.
Verð: 290.000 Evrur (ISK 42.000.000, gengi 1Evra/145 ISK)Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
http://www.spanareignir.isMögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með mjög hagstæðum vöxtum.
Kostnaður við kaupin: 9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.
Eiginleikar: nýleg eign, sameiginlegur sundlaugargarður, sér garður, air con, bílastæði, heitur pottur,
Svæði: Costa Blanca, Villamartin, Los Dolses,