Skráð 2. feb. 2023
Deila eign
Deila

Björkurstekkur 13

Nýbygging • RaðhúsSuðurland/Selfoss-800
162.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
Verð
73.200.000 kr.
Fermetraverð
449.908 kr./m2
Fasteignamat
49.650.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 2022
Bílskúr
Fasteignanúmer
2522428
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
3
Byggingarstig
4 - Fokheld bygging
Matsstig
4 - Fokheld bygging
HÚS fasteignasala kynnir í einkasölu: Björkurstekkur 13. Fjögurra herbergja, nýtt vandað og staðsteypt endaraðhús. Fullbúið að utan með vandaðri klæðningu og einangrað. Rúmlega fokhelt að innan. Allar raflagnir(lagnaleiðir) og dósir komnar í útveggi, steypta innveggi og loft en ekki búið að draga í. Lóð frágengin, steypt innkeyrsla með snjóbræðslulögnum, þökulögð lóð og sólpallur í suðurgarði, örstutt í nýjan grunnskóla, Stekkjarskóla.
Innra skipulag skv teikningu. Forstofa, gangur, þrjú svefnherbergi, eldhús og stofa í opnu rými, baðherbergi, þvottahús geymsla og bílskúr.


Tilbúið til afhendingar fljótlega miðað við skilalýsingu. Mögulegt er að kaupa húsið lengra komið skv nánara samkomulagi.

Björkurstekkur 9 – 13 er raðhúsalengja með þremur íbúðum.  Nýbyggður grunnskóli örstutt frá húsinu. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd að utan með viðhaldslitlum klæðningum.
Skilalýsing
Utanhússfrágangur:
Útveggir: Húsið er fulleinangrað að utan.  Veggir eu klæddir með mjög vandaðri 2mm sléttri álklæðningu sem er brotin upp í eins konar panela.
Gluggar og útihurðir: Allir gluggar eru ál/tré gluggar, hvítmálað timbur að innan en álklæddir að utan.
Þak: Svokallað viðsnúið þak. Tvöfalt lag af asphalt pappa er heilsoðið á steypta þakplötu sem er formuð með halla að niðurföllum. Ofan á dúkinn kemur 200 mm einangrunarlag, slimline dúkur ofan á einangrunina og loks malarfarg.
Skilveggir í lóðamörkum á milli íbúða eru steyptir með standandi borðaklæðningaráferð
Innanhússfrágangur fokhelt
Útveggir: Steyptir og ómeðhöndlaðir, tilbúnir til slípunar og spörtlunar
Innveggir: Steyptir burðarveggir, bílskúrsveggir og veggir á milli íbúða eru steyptir, tilbúnir til slípunar og spörtlunar
Frágangur lofta: Loft, steypt plata tilbúin til slípunar og spörtlunar
 
Raflagnir: Allar raflagnir(lagnaleiðir) og dósir komnar í útveggi, steypta innveggi og loft en ekki búið að draga í.  Búið að greiða fyrir rafmagnsinntak og strengur kominn inn en ótengdur.  Í húsi nr. 11 er komin rafmagnstafla og búið að hleypa rafmagni á. 
Útiljós fylgja öllum íbúðum.
Ljósleiðaralagnir eru komnar inn í allar íbúðir
Pípulagnir: Gólfhiti er í öllum íbúðum og eru þær lagnir steyptar í botnplötu.  Allar tengingar og hitakerfisbúnaður fylgir ekki.  Inntakslagnir fyrir heitt og kalt vatn eru komnar inn í öll hús.
Loftræsikerfi : Þakventlar eru á þaki samkvæmt hönnun en gert er ráð fyrir vélrænni loftræstingu út úr votrýmum og gluggalausum rýmum. Loftræsiventill er út úr vegg í hverri íbúð til að varna undirþrýstingsmyndun.
Geymslur eru inni í öllum íbúðum.
 
Lóð:
Lóð verður fullfrágengin samkvæmt teikningu, þökulögð en án trjágróðurs.
Sólpallar fylgja öllum íbúðum
Hitalagnir eru í innkeyrslum og stéttum að húsi. 
Innkeyrslur verða steyptar.
Sorpskýli fyrir 3 tunnur fylgja hverri íbúð.
 
Hönnun og framkvæmd verks
Arkitektateikningar: Mbyggingar – Ragnar Magnússon
Burðarþol og lagnahönnun: New Nordic engineering ehf.
Raflagnir: LUMEX
Eigandi framkvæmdar: Pálmatré ehf.
Byggingaraðili: Pálmatré ehf.
Kaupendur greiða skipulagsgjald sem er 0,3 % af brunabótamati íbúðar. Gjaldið er lagt á eftir lokaúttekt. 
Kaupandi skal áður en hann hefur framkvæmdir ráða nýjan byggingarstjóra að húsinu, sama gildir um alla aðra iðnmeistara að húsinu. 

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali s. 864-8090 eða snorri@fasteignasalan.is

 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2022
25.4 m2
Fasteignanúmer
2522428
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
06
Byggingarstig
4 - Fokheld bygging
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
4 - Fokheld bygging
Mynd af Snorri Sigurfinnsson
Snorri Sigurfinnsson
Löggiltur fasteignasali

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langamýri 16a
Skoða eignina Langamýri 16a
Langamýri 16a
800 Selfoss
161.4 m2
Raðhús
423
433 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Ástjörn 2
Skoða eignina Ástjörn 2
Ástjörn 2
800 Selfoss
128.8 m2
Raðhús
312
543 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Seftjörn 8
Bílskúr
Skoða eignina Seftjörn 8
Seftjörn 8
800 Selfoss
147 m2
Raðhús
413
510 þ.kr./m2
75.000.000 kr.
Skoða eignina Sílatjörn 12
Bílskúr
Skoða eignina Sílatjörn 12
Sílatjörn 12
800 Selfoss
148.4 m2
Raðhús
413
491 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache