FS fasteignir – 571-9992OPIÐ HÚS
FS fasteignir býður ykkur velkomin á opið hús þriðjudaginn 17. nóvember á milli kl. 16:30-17:00.
Smelltu hér til að skoða nánar.Brekkugata 36 701, 600 AkureyriGlæsileg og mjög skemmtileg 5 herbergja 210,7 m
2 íbúð á 7. hæð (efstu) á frábærum útsýnisstað í fjölbýlishúsi með lyftu. Íbúðin sjálf er 172,9 m
2, henni fylgja fjórar sér geymslur sem saman telja 37,8 m
2 og tvö bílastæði í kjallara hússins.
Gengið er inn í anddyri, þaðan er gengið inn á svefnherbergisgang með tveimur herbergjum og baðherbergi. Frá anddyri er gengið inn á alrými með rúmgóðri stofu og eldhúsi, út frá eldhúsi er gengið út á 12,8 m
2 yfirbyggðar svalir, inn af eldhhúsi er búr/vinnurými sem í dag nýtist sem fullbúið vinnueldhús. Frá alrýni er farið inná gang sem er þvottahús, stórt baðherbergi og Hjónaherbergi, herbergi sem nýtt er í dag sem fataherbergi, hurð út á 10,6 m
2 yfirbyggðar svalir frá hjónaherbergi.
Nánari lýsing: - Anddyri: Þar eru flísar á gólfi og stórir eikar fataskápar.
- Svefnerbergi: Eru tvö, bæði rúmgóð með flísum á gólfi, eikar fataskápum og gluggum til austurs.
- Baðherbergi: Er með flísum á gólfi og veggjum, vönduð sérsmíðuð eikar innrétting með granít borðplötu, upphengt salerni og walk-in sturta.
- Stofa/borðstofa: Er bjart og rúmgott, þar eru flísar á gólfi, stórir gluggar til suðurs með flottu útsýni.
- Eldhús: Er í opnu rými með stofu, þar eru flísar á gólfi, falleg sérsmíðuð eikar innrétting með granít borðplötu, innbyggður Liebherr ísskápur og Miele gaseldavél.
- Svalir: Eru inn af eldhúsi, þar er kamína í suðvestur endanum, svalirnar eru yfirbyggðar og eru skv. HMS 12,8 m
2 að stærð, flísar á gólfi.
- Búr/Vinnurými: Er inn af eldhúsi, þar eru flísar á gólfi, gott skápapláss, falleg sérsmíðuð eikar innrétting með granít borðplötu. Þar er Miele gaseldavél og stálvaskur.
- Gangur: Er inn af alrými, þar eru flísar á gólfi.
- Þvottahús: Er rúmgott, með góðum hvítum skápum með ljósri bekkplötu, stæði í innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, flísar á gólfi og þakgluggi.
- Baðherbergi: Er með flísum á gólfi og hluta veggja, falleg sérsmíðuð eikar innrétting með granít borðplötu, baðkar, walk-in sturta með gleri, upphengt snjall salerni og þakgluggi.
- Herbergi: Nýtist í dag sem fataherbergi, þar eru flísar á gólfi, góðir fataskápar og stór gluggi til vesturs.
- Hjónaherbergi: Er rúmgott með stórum gluggum til tveggja átta með glæsilegu útsýni yfir fjörðinn, flísar á gólfi, þaðan er gengið út á 10,6 m
2 yfirbyggðar svalir, þar eru flísar á gólfi.
- Geymslur: Eigninni fylgja fjórar sér geymslur í kjallara hússins stærðir þeirra eru 5,7 m
2, 9,2 m
2, 11,1 m
2 og 11,8 m
2.
Annað:- Allar innihurðir eru úr eik og eru hærri en staðlaðar innihurðir.
- Þriggja metra lofthæð er í íbúð.
- Gólfhiti er í öllum gólfum íbúðar.
- Sólstopp er í gluggum í stofu.
- Granít sólbekkir í gluggum.
- Hljóðdempandi plötur í lofti í alrými og á göngum.
- Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
- Frábær staðsetning.
- Ljósleiðari.
Nánari upplýsingar í síma 571-9992 eða fsfasteignir@fsfasteignir.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
FS fasteignir ehf. - Glerárgata 36, 3. hæð - 571-9992 - www.fsfasteignir.is
Friðrik Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, s: 694-4220, fridrik@fsfasteignir.is
Svala Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 663-5260, svala@fsfasteignir.is
Sigurpáll Gunnarsson, nemi til löggildingar fasteignasala, s: 618-6126, sigurpall@fsfasteignir.is
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá verðmat og ráðgjöf.
Fylgstu með nýjustu eignunum til sölu hjá okkur á facebook og instagram.