Lögeign kynnir eignina Höfðabrekka 21, neðri hæð, 640 Húsavík
Um er að ræða fjögurra herbergja, 124 m2 neðri hæð í tvíbýlishúsi, þar sem farið hefur verið í miklar framkvæmdir bæði að utan og innan. Innra skipulag skiptist í forstofu, þvottahús, baðherbergi, eldhús, stofu með útgengi út á timburverönd og þrjú svefnherbergi. Á undanförnum árum hefur verið farið í mikið af framkvæmdum og má þar nefna m.a. þak, glugga, eldhús, baðherbergi auk þess flestar lagnir að innan og svo skólplagnir úr húsi hafa verið endurnýjaðar.
Nánari Lýsing:
Forstofa og þvottahús: Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp, inn af forstofunni tekur við gangur sem tengir saman þvottahús og alrými. þvottahúsið er flísalagt og með bekk á tveimur veggjum sem gefur þvottahúsinu gott bekkpláss, við endan á þvottahúsinu er lítil geymsla.
Baðherbergi: flíslagt í hólf og gólf, sturta, handklæðaofn og viðarlituð vaskainnrétting ásamt veggskáp.
Eldhús og stofa: Eru saman í opnu rými, eldhúsinnréttingin er með dökkum neðri skápum og viðarlituðum efri skápum. Stofan er rúmgóð og nýtist bæði sem borðstofa og sjónvarpsstofa, parket á gólfi og útgengt út á timburverönd.
Þrjú svefnherbergi: Eru staðsett inn af alrými á herbergisgang. Hjónaherbergið er með stórum fataskáp og svo er stór skápur innst á ganginum.
Í garðinum er kofi sem tilheyrir eigninni og nýtist vel sem geymsla.
Annað:
Skipt var um frárennsli/skólplagnir út úr húsi og í brunn árið 2024
Þak var endurnýjað árið 2016
Gluggar voru endurnýjaðir árið 2013.
Eldhús og baðherbergi var endurnýjað fyrir um 5 árum og var þá farið í lagnir í tengslum við það.
Allar hurðir og gólefni hefur verið endurnýjað á síðustu árum.
Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á