Fasteignaleitin
Skráð 5. nóv. 2025

Langeyrarvegur 16

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
107.7 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
927.577 kr./m2
Fasteignamat
86.650.000 kr.
Brunabótamat
58.700.000 kr.
Mynd af Snorri Björn Sturluson
Snorri Björn Sturluson
Hdl., Löggiltur fasteignasali. Eigandi.
Garður
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2077287
Landnúmer
121588
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjaðar að miklu leyti árin 1999-2000 samkvæmt þáverandi eigendum
Raflagnir
Endurnýjaðar að miklu leyti árin 1999-2000 samkvæmt þáverandi eigendum
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar að miklu leyti árin 1999-2000 samkvæmt þáverandi eigendum
Gluggar / Gler
Endurnýjað árin 1999-2000 og gler að hluta 2020-2023 samkvæmt fyrri eigendum
Þak
Þakjárn endurnýjað árin 1999-2000 samkvæmt þáverandi eigendum. Það var svo yfirfarið árin 2020-2023 samkvæmt þáverandi eigendum
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Gallar
Þakpappi á garðhúsi er laus. Hefur komið vatn í gegnum þakið eftir að pappinn losnaði. Einnig er rakavarnarlag i lofti garðhúss óþétt og þarf að laga. 
Ofn í garðhúsi virkar ekki.
Valhöll kynnir virkilega fallegt og sjarmerandi einbýlishús með stórum garði á eftirsóttum stað í Vesturbænum í Hafnarfirði. Húsið hefur verið mikið endurnýjað og byggt við það og lítur það vel út að innan sem utan. Útsýni út á sjóinn og höfnina. Góður garður með stórri verönd og heitum potti. Einstaklega falleg eign í gömlum stíl sem vert er að skoða. 

Húsið er skráð 107,7 fm á stærð sem skiptast í 51,3 fm í kjallara / jarðhæð, 46,8 fm aðalhæð og 9,6 fm í risi. Athugið að risið er töluvert undir súð og gólfflötur því stærri.

Húsið fór í gengum miklar endurbætur samkvæmt þáverandi eigendum í kringum árin 1999-2000. Þá var ytra byrði hússins endurnýjað þ.e. þakjárn, gluggar og gler ásamt bárujárnsklæðningu og farið í múrviðgerðir. Einnig voru endurnýjaðar a.m.k. hluti vatnslagna og frárennslislagna, ásamt rafmagni og innréttingum. Svo var farið í frekara viðhald á árunum 2020 - 2023 af seinustu eigendum eins og má sjá á upptalningu að neðan.

Frábær staðsetning í Hafnarfirði. Stutt í leikskóla, skóla og góð útivistarsvæði á Víðistaðatúni og Hellisgerði. Þá er stutt í miðbæ Hafnarfjarðar og allt sem þar er upp á að bjóða s.s. verslanir og veitingastaði.  


Nánari upplýsingar veitir:
Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða snorribs@valholl.is

Nánari lýsing:
Ris:
Svefnherbergi.
Opið rými sem er í dag nýtt sem svefn- og vinnurými.
Góðar geymslur undir súð.
Margir kvistar með góðum gluggum.
Viðargólf á öllu risinu.

Aðalhæð:
Gengið upp viðarstiga inn á 1. hæðina.
Anddyri með fataskáp og flísum á gólfi.
Hol með flísum á gólfi.
Gestasalerni með flísum á gólfi.
Stofa og borðstofa með björtum gluggum með fallegu útsýni út á sjóinn og með viðargólfi.
Eldhús með hvítri innréttingu með viðarborðum, tengi fyrir uppþvottavél og viðargólfi.

Kjallari / jarðhæð:
Anddyri með fatahengi og flísum á gólfi og hurð út í garð sem hægt er að nota sem inngang.
Hol með flísum á gólfi. 
Tvö svefnherbergi, bæði með harðparketi á gólfi.
Þvottarými / lagnarými með teppi á gólfi.
Baðherbergi með sturtuklefa, innréttingu með vaski, handklæðaofni og flísum á gólfi.

Garðurinn:
Garðurinn er mjög fallegur með stórri viðarverönd, eldstæði og heitum potti. Hitastýring frá Danfoss og hitaþráður í lögnum tryggja aðgengi að pottinum allt árið. 
Rúmgott garðhús (geymsla) er ofan á veröndinni sem er einangruð að hluta.
Hluti af garðinum / lóðinni er hellulagður með hitalögn að hluta.

Ýmsar upplýsingar frá fyrri eigendum:

Saga hússins:
Langeyrarvegur 16 er upprunalega byggt árið 1902. Húsið var upprunalega efsta húsið á Reykjarvíkurvegi og var númer 15. Nefndist það fyrir vikið „Efsta kot“  Getið er til hússins og ábúenda þess í söguheimildinni „Bær í byrjun aldar“. Árið 1947 var húsið flutt á núverandi staðsetningu við Langeyrarveg 16. Það var árið 1954 sem fyrri viðbygging var byggð við húsið og síðar í kringum aldamótin 1999 og 2000 taka fyrri eigendur húsið algjörlega í gegn og stækka það enn frekar til norðurs og er það í þeirri mynd sem þar er í dag. 

Húsið var síðan selt árið 2020 og fóru nýjir eigendur í kjölfarið í ýmislegt viðhald á árunum 2020 - 2023 og gerðu m.a. eftirfarandi:

Lóð  
Reistur var pallur, eldunaraðstæða og eldstæði ásamt smáhýsi og heitum potti. 
Hitastýring frá Danfoss og hitaþráður í lögnum tryggja aðgengi að pottinum allt árið. 
Jarðvegsskipti varð að hluta til á lóð. 
Hellulögn endurnýjuð að hluta.

Hús 
Endurnýjaðir voru gluggar á efstu hæð í framhúsi, þar sem bætt var við möguleika á neyðarútgangi.  
Endurnýjaðir gluggar á suðurhlið ásamt endurglerjun. Öll gler sem skipt hefur verið um voru sólvarnargler og orkusparandi. 
Öll bára á húsi yfirfarin, ryðvarin og máluð.  
Þak allt yfirfarið, ryðvarið og málað. 
Endurnýjuð gerefti .
Endurnýjaður þakkantur á austur hlið. 
Múr lagaður og unninn með teygjanlegum fylligrunn og málaður.

Athugið að allar upplýsingar um viðhald og breytingar á eigninni koma frá fyrri eigendum eignarinnar. Núverandi eigandi hefur ekki staðið í neinum framkvæmdum né viðhaldi á húsinu.

Nánari upplýsingar veitir:
Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögfræðngur í síma 699-4407 eða snorribs@valholl.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
04/03/202478.000.000 kr.87.000.000 kr.107.7 m2807.799 kr.
29/06/202078.000.000 kr.56.000.000 kr.107.7 m2519.962 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (65)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Furuvellir 13
Bílskúr
Skoða eignina Furuvellir 13
Furuvellir 13
221 Hafnarfjörður
226.6 m2
Einbýlishús
513
692 þ.kr./m2
156.900.000 kr.
Skoða eignina Hæðargata 9
Bílskúr
Skoða eignina Hæðargata 9
Hæðargata 9
260 Reykjanesbær
212 m2
Fjölbýlishús
515
471 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Fitjaás 12
Bílskúr
Skoða eignina Fitjaás 12
Fitjaás 12
260 Reykjanesbær
207.3 m2
Einbýlishús
54
535 þ.kr./m2
110.900.000 kr.
Skoða eignina Furudalur 13
Bílskúr
Skoða eignina Furudalur 13
Furudalur 13
260 Reykjanesbær
182.3 m2
Einbýlishús
424
634 þ.kr./m2
115.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin