Glæsileg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í Hlíðarhorni.Íbúðin er staðsett í fyrsta áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin er ætluð 50 ára og eldri.
Þrír kaupmöguleikar í boði.
*Hlutdeildarkaup
*Þarft einungis 10% útborgun
*BúseturétturNánari upplýsingar varðandi kaupmöguleika, eignina og skoðun fást hjá:
Pálsson fasteignasölu, palsson@palssonfasteignasala.is S. 764-7474
www.eignavakt.iswww.verdmat.isGóð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð er 84 fm þar af 6,1 fm geymsla í kjallara. Útisvæði er 24,4 fm.
Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir og sólríkar þaksvalir, tvö svefnherbergi, fataherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með gráum, möttum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens í svörtu stáli, hágæða blöndunartækjum frá Mariner Kobra í byssubláu stáli og slitsterku dökku Berry Alloc Elite gólfefni. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mói 2.Nánari lýsing:Í
anddyri eru góðir fataskápar.
Gengið er beint inn í rúmgott
alrými með
eldhúsi með eyju og
stofu/borðstofu með gólfsíðum gluggum og útgengi á svalir sem snúa inn í inngarð og rúmlega 17 fm
þaksvalir með tengi fyrir heitan pott.
Taupe grá eldhúsinnrétting með mattri áferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og blöndunartæki úr byssubláu stáli. Öll eldhúsraftæki eru í hæsta gæðaflokki. Innbyggður ísskápur og vínkælir.
Rúmgott
hjónaherbergi með góðu fataherbergi.
Svefnherbergi með fataskáp.
Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, taupe grá innrétting með mattri áferð og speglaskápur með lýsingu. Innbyggð blöndunartæki úr byssubláu stáli.
Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði.
Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0031.
Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar
hjóla- og vagnageymslur og
bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.
Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.
Myndir í auglýsingu geta verið úr annari íbúð með sama innréttingaþema.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.
Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.