Fasteignaleitin
Opið hús:22. júlí kl 17:00-18:00
Skráð 16. júlí 2026

Hnjúkamói 9

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
81.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
62.000.000 kr.
Fermetraverð
757.946 kr./m2
Fasteignamat
22.600.000 kr.
Mynd af Kristján Þór Sveinsson
Kristján Þór Sveinsson
Löggiltur fasteignasali
8986822www.helgafellfasteignasala.isEignalisti
4. hæð af 5
Garður
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2538513
Landnúmer
241420
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Nýjar
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýjar
Gluggar / Gler
Nýir
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
8 fm. austursvalir.
Lóð
1,94
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Helgafell fasteignasala kynnir:
Nýjar og vandaðar íbúðir við Hnjúkamóa 9, í MIÐBÆ ÞORLÁKSHAFNAR.
Húsið er fimm hæða staðsteypt lyftuhús, auk kjallara, með 20 íbúðum.
Um er að ræða tveggja til fjögurra herbergja íbúðir. Hverri íbúð fylgir sérgeymsla og svalir eða hellulagður sérafnotareitur á jarðhæð.  44 bílastæði eru í óskiptri sameign með Hnjúkamóum 7 og 11, þar af eru fjögur stæði merkt hreyfihömluðum. Að auki er gert ráð fyrir 46 bílastæðum á sérstakri bílastæðalóð við austurenda deiliskipulagssvæðisins. 

 
Íbúðum verður skilað fullbúnum með gólfefnum, baðherbergi og þvottahús eru með flísalögðum gólfum og veggir á baðherbergjum eru flísalagðir að hluta. 
Eignirnar verða afhentar í ágúst/september 2026. ATH. Tölvuteiknaðar innimyndir eru af íbúð 0401.

Húsið er staðsett í nýjum miðbæjarklasa í Þorlákshöfn. Lögð er áhersla á að öll umgjörð hverfisins verði hlý og aðlaðandi sem skiptist í nokkra kjarna, sem tengjast saman með vistgötum.
 
Nánar um eignina:
Um er að ræða þriggja herbergja íbúð á fjórðu hæð merkta 0403. Birt stærð eignar er 81,8 fm. , þar af er 7,1 fm. sérgeymsla merkt 0009 í sameign. Eigninni fylgja 8 fm. austursvalir.
Íbúðin skiptist í anddyri, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Útgengi er á svalir úr stofu.
Eignin skilast samkvæmt "Hnjúkamói 9 Almenn skilalýsing íbúða, apríl 2026"
 
Frágangur:
Gólf eru lögð vönduðu Quick step harðparketi frá Harðviðarval. Gólf á baðherbergi og þvottahúsi eru flísalögð.
Veggir eru spartlaðir og málaðir. Veggir á baðherbergjum eru flísalagðir að hluta skv. teikningum. 
Hurðar eru hvítar og yfirfelldar, án þröskulda. 
Allar innréttingar eru frá Arens (söluaðili er Ormsson ehf.) og eru í stöðluðum stærðum, skv. innréttingateikningum.
Í eldhúsi eru forstykki hvít og borðplötur eru plastlagðar í ljósgráum lit. Stærðir innréttinga eru í stöðluðum stærðum, skv. teikningum.
Hnífaparabakki og sorpflokkunareining fylgir eldhúsum. Eldhúsraftæki eru frá AEG. Blöndunartæki frá Grohe. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð.
Eins hólfs eldhúsvaskur úr stáli, með einnar handar Grohe blöndunartæki.
Hvítar hurðar, úthliðar og sökklar eru í svefnherbergjum og forstofu. Stærðir skápa eru skv. teikningum.  
Innréttingar á baðherbergjum eru með speglum, skápar eru í hvítum lit og borðplötur eru úr harðplast. Flísalögn á baði mun ná upp í loft á tvo veggi.
Sturtur eru með sturtugleri, hitastýrðum blöndunartækjum ásamt sturtustöng með haus og handúðara. Blöndunartæki frá Grohe. Vegghengt salerni frá Laufen með hæglokun á setu. Handlaug er með einnar handar blöndunartæki. 
Ljós (kúplar) eru á baðherbergi og eldhúsi. Sjónvarps- og nettenglar í herbergjum. Rofar og tenglar eru hvítir frá Gira, Berker eða sambærilegt. Fjöldi tengla er skv. teikningum.
Mynddyrasímar eru í íbúðum. Reykskynjarar fylgja uppsettir sem og slökkvitæki. 
Loftun úr gluggalausum rýmum skv. reglugerð og teikningum. Ferskloftsventlar í útveggjum skv. hönnun.
Húsið er upphitað með miðstöðvarofnum á hefðbundinn hátt.

Lóðarfrágangur verður skv. teikningum landslagsarkitekta. Snjóbræðsla á göngustígum samkvæmt teikningu. Bílastæði verða malbikuð og  afmörkuð með máluðum línum. Seljanda ber ekki að skila sameign eða lóð fullfrágenginni á sama tíma og íbúð verður afhent og áskilur seljandi sér rétt til að ljúka frágangi sameignar og eða lóðar eftir að íbúðir hafa verið afhentar. Sameign skilast fullbúin með fullfrágenginni lyftu.
Enginn leiktæki fylgja með lóðafrágangi.
Gert er ráð fyrir að hægt verði að setja bílahleðslustöðvar við húsið.

ATH. Auglýsingaefni og 3D teikningar eru eingöngu til hliðsjónar og komi upp misræmi, gilda verkteikningar hönnuða.

Nánar um skil íbúðar og endanlegan frágang húss og lóðar er að finna í "Hnjúkamói 9 Almenn skilalýsing íbúða, apríl 2026".
Kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald sem innheimt er við endanlegt brunabótamat.

Byggingaraðili: Miðbær Þorlákshöfn ehf.
Aðalverktaki: Framkvæmdafélagið Arnarhvoll ehf.
Arkitekt: Arkís arkitektar ehf.
Burðarþolshönnun: Vektor ehf., verkfræðistofa.
Lagnahönnun: Vektor ehf., verkfræðistofa.
Raflagnahönnun: Voltorka ehf., verkfræðistofa
Lóðahönnun: Landhönnun ehf.

Allar nánari upplýsingar veita:
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali, s: 898-6822 / kristjan@helgafellfasteignasala.is 
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / knutur@helgafellfasteignasala.is
Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, s: 893-3276 / holmar@helgafellfasteignasala.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (12)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þverholt 13 (406)
1.jpg
Þverholt 13 (406)
105 Reykjavík
77.5 m2
Fjölbýlishús
312
1057 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Þverholt 13 (201)
Livingroom_final.jpg
Þverholt 13 (201)
105 Reykjavík
78.4 m2
Fjölbýlishús
312
1057 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Sunnusmári 2
IMG_7786.jpg
Skoða eignina Sunnusmári 2
Sunnusmári 2
201 Kópavogur
83.1 m2
Fjölbýlishús
312
986 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 408
Hleðslustöð
Skoða eignina Laugaborg 408
Laugaborg 408
105 Reykjavík
82.7 m2
Fjölbýlishús
312
1064 þ.kr./m2
88.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin