Skráð 30. des. 2022
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
119 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
72.700.000 kr.
Fermetraverð
610.924 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
950000071
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Verönd og þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ Á LA FINCA GOLFVELLINUM*


Vönduð og falleg einbýlishús við hinn glæsilega La Finca golfvöll. Um 30 mín akstur suður af Alicante. Húsin eru á einni hæð, vel skipulögð með góðu alrými, þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Sér garður með einkasundlaug. Stór þakverönd með útsýni yfir golfvöllinn. Bílastæði inni á lokaðri lóð.

Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, gsm 893 2495. adalheidur@spanareignir.is og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, gsm 777 4277, karl@spanareignir.is.


Nánari lýsing:
Húsið skiptist í gott eldhús, með góðri tengingu við útisvæði og stofu/borðstofu í rúmgóðu alrými.
Þrjú  svefnherbergi og tvö baðherbergi.

Út frá stofunni er stór verönd og góður, lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar, grilla ofl. Einkasundlaug í garðinum.

Mikið innifalið:
Fullfrágenginn garður með einkasundlaug.
Stór þakverönd með golfútsýni.
Rafmagnstæki í eldhúsi ásamt þvottavél.
Hiti í gólfum á baðherbergjum.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.


NÝR ÁFANGI VAR AÐ KOMA Í SÖLU
Verð frá 485.000 evrum + kostn. (72.700.000 ISK+kostn, gengi 1 evra=150 ISK)
Traustur byggingaraðili með góða þjónustu.

Húsið er vel staðsett í göngufæri við Klúbbhúsið á La Finca Golfvellinum. Gott úrval veitingastaða og verslana í göngufæri. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, Las Ramblas, Lo Romero, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.

Ca. 20 mín akstur er niður á ströndina. Ca. 10-20 mín akstur verslunarmiðstöðvarnar Habaneras og La Zenia Boulevard. Ennfremur er stutt að keyra í skemmtilega bæi í næsta nágrenni, t.d. Algorfa og Ciudad Quesada.

Glæsilegt fimm stjörnu golf og spa hótel í  göngufæri. Þar er hægt að njóta dekurs og borða góðan mat.
Hér er um að ræða flotta eign fyrir golfara og fólk sem kann að njóta lífsins.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því verið ca. 13%.

Eiginleikar: þakverönd, útsýni, sér garður, einkasundlaug, bílastæði, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, La Finca,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.eignir.isEignir í sölu

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Punta Prima Raðhús
Punta Prima Raðhús
Spánn - Costa Blanca
150 m2
Raðhús
534
480 þ.kr./m2
72.000.000 kr.
Skoða eignina Sumareignir Punta Prima
Sumareignir Punta Prima
Spánn - Costa Blanca
150 m2
Raðhús
534
465 þ.kr./m2
69.800.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Spánn - Costa Blanca
143 m2
Fjölbýlishús
322
498 þ.kr./m2
71.200.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
119 m2
Einbýlishús
423
607 þ.kr./m2
72.200.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache