Fasteignaleitin
Opið hús:26. maí kl 17:30-18:00
Skráð 22. maí 2026

Hjarðarhagi 56

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
82.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
906.780 kr./m2
Fasteignamat
68.650.000 kr.
Brunabótamat
32.350.000 kr.
Mynd af Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2028015
Landnúmer
106455
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
05
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
ekki vitað
Raflagnir
ekki vitað
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
málað 2022
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suður
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Falleg íbúð með einstöku útsýni.
Gimli fasteignasala kynnir mjög sjarmerandi og fallega 3 herbergja íbúð á efstu hæð í einstaklega fallegu húsi við Hjarðarhaga 56 sem teiknað var af Einari Sveinssyni arkitekt. 
Glæsilegt útsýni er úr eigninni yfir Vesturbæinn og til sjávar. 
Skipulag innan íbúðar er á eftirfarandi hátt:  Forstofa, eldhús í opnu rými með stofu, útgengt á suðvestur svalir úr stofu, hjónaherbergi, barnaherbergi, baðherbergi. 
Skv. HMS er eignin skráð 82,6 fm2. Falleg og vel umgengin eign á eftirsóttum stað í Vesturbæ Reykjavíkur.
Örstutt er í leikskóla, grunnskóla, Háskóla Íslands, sundlaug Vesturbæjar, Melabúðina, Kaffi Vest, Háskólabíó, íþróttasvæði KR o.fl. Í næsta nágrenni er Ægissíðan með göngustígum, hjólastígum og hlaupabrautum meðfram ströndinni. 

Að sögn seljenda hafa eftirfarandi framkvæmdir farið fram á undanförnum árum: 
2024 Baðherbergi endurnýjað, flísar, hreinlætistæki ásamt innréttingu.
2024 Gólf flotað og skipt um öll gólfefni. Ofnalagnir endurnýjaðar að hluta. 
2024 Ruslatunnuskýli endurnýjuð.
2023 Múrviðgerðir ásamt málun utanhúss.
2023 Þakskegg endurnýjað.
2023 Skipt um alla glugga í eigninni ásamt svalahurð.
2022 Þak málað.
Lýsing.

Lýsing eignar:
Forstofa: Fatahengi. Vinylparket á gólfi. 
Eldhús: Aukin lofthæð að hluta. Rúmgóð innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Í eldhúsinnréttingunni er gert ráð fyrir þvottavél. Vinylparket á gólfi. 
Stofa: Björt og rúmgóð með útgengi á suðvestursvalir. Einstakt útsýni til sjávar. Vinylparket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott og bjart með innbyggðum fataskáp. Vinylparket á gólfi. 
Barnaherbergi: Sérlega rúmgott og bjart með aukinni lofthæð. Innbyggður fataskápur. Vinylparket á gólfi. 
Baðherbergi: Nýlega endurgert, flísar á gólfi og veggjum að hluta. Walk inn sturta með hertu gleri, innrétting með skúffum, speglaskápur á vegg. Upphengt salerni. Gluggi með opnanlegu fagi. 
Svalir: Sem snúa til suðvesturs. 
Garður og lóð: Einstaklega stór sameiginleg lóð með gróðurkassa sem tilheyrir eigninni ásamt sameiginlegum gróðurkassa fyrir íbúa hússins. Leiktæki fyrir börn, sleðabrekka á lóð.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús þar sem hver getur haft sína vél ásamt þurrkherbergjum, með Hjarðarhaga 54 - 58. Inn af þvottahúsi er sameiginlegt salerni. 

Hússjóður er kr. 35,000 á mánuði.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
30/04/202563.550.000 kr.73.500.000 kr.82.6 m2889.830 kr.
22/12/202043.500.000 kr.41.500.000 kr.82.6 m2502.421 kr.
31/07/201218.450.000 kr.10.150.000 kr.82.6 m2122.881 kr.Nei
08/06/200614.135.000 kr.16.800.000 kr.82.6 m2203.389 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vorbraut 11 íb 301
Vorbraut 11 íb 301
210 Garðabær
125.1 m2
Fjölbýlishús
322
1198 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 9 íb 104
Vorbraut 9 íb 104
210 Garðabær
91.2 m2
Fjölbýlishús
312
964 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 14 (205)
Opið hús:24. maí kl 14:00-14:30
Hnjúkamói 14 (205)
815 Þorlákshöfn
97.4 m2
Fjölbýlishús
413
646 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 14 (204)
Opið hús:24. maí kl 14:00-14:30
Hnjúkamói 14 (204)
815 Þorlákshöfn
75.9 m2
Fjölbýlishús
312
710 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin