Böðvar Sigurbjörnsson og Borg fasteignasala kynna til sölu: Hvassaleiti 7, 103 Reykjavík. Vandað raðhús með bílskúr og aukaíbúð á sér fastanúmeri, frábær staðsetning í hjarta Háaleitishverfis. Góð bílastæðaaðstaða við húsið, auk nægra bílastæða í næsta nágrenni.
Gott tækifæri til að eignast fjölskylduhús miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu með aukaíbúð og möguleika á góðum leigutekjum. Stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla, verslanir, íþróttaaðstöðu og heilsugæslu. Fasteignamat ársins 2026 er kr. 169.350.000 -.Nánari lýsing: Húsið sem er skráð samtals 260 m2 er á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Í kjallara hússins er tveggja herbergja 43 m
2 íbúð á sér fastanúmeri með sérinngangi.
1.hæð. Komið er inn í snyrtilegt anddyri með flísum á gólfi og góðu skápaplássi. Þaðan er gengið inn í hol með parketi á gólfi og áfram inn á svefnherbergisgang.
Á hæðinni eru fjögur svefnherbergi, öll með parketi á gólfi. Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskáp og útgengi á svalir.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðkari, upphengdu salerni, innréttingu með skápum og lýstum spegli.
Innbyggður 25,5 fm bílskúr er við anddyri. Hann er upphitaður og með rafmagni, heitu og köldu vatni.
2.hæð. Gengið er upp parketlagðan stiga í bjartar og rúmgóðar stofur og eldhús.
Eldhúsið er með flísum á gólfi, borðkrók og smekklegri ljósri innréttingu frá Alno með góðu skápaplássi, ofni í vinnuhæð og vönduðum tækjum.
Stofa, borðstofa og setustofa eru samliggjandi með parketi á gólfi og mynda fallegt og bjart alrými.
Útgengi er á um 30 fm þaksvalir til austurs frá stofu og svalir til vesturs frá borðstofu sem tryggja góða sól og birtu allan daginn. Fallegt og opið útsýni er til austurs.
Kjallari – AukaíbúðÍ kjallara er tveggja herbergja íbúð með sérinngangi og útgengi í garð. Einnig er innangengt milli íbúða.
Íbúðin skiptist í:
• Rúmgóða stofu með parketi
• Eldhús með hvítri innréttingu og borðkrók
• Svefnherbergi með skáp
• Baðherbergi með sturtuklefa og handlaug
Þvottahús er í kjallara og nýtist bæði aðalíbúð og aukaíbúð.
Annað: Húsið hefur verið í eign seljanda frá árinu 2003 og almennt vel við haldið. Meðal þess sem gert hefur verið fyrir húsið er: 2003, allt málaða að innan og eldhús og tæki endurnýjuð ásamt öðru nauðsynlegu viðhaldi - 2004 baðherbergi endurnýjað að fullu - 2006 kjallaraíbúð tekin í gegn, skipt um gólfefni, eldhús endurnýjað að hluta ásamt baðherbergi - 2012 Viðhald utanhúss, sprunguviðgerðir og málað - 2014 Skólplagnir endurnýjaðar að fullu og kjallaraíbúð yfirfarin - 2017 skipt um gler og einnig opnaleg fög á bakhlið í kjallara og 1. hæð, á efri hæð var búið að endurnýja gler fyrir 2003. 2018 - Allsherjar múrviðgerðir á svölum á baklóð - 2020 Steypuviðgerðir og steyptur kantur við útgang á baklóð við kjallaraíbúð ásamt tröppuviðgerðum við aðalinngang á framan verðu. 2020 - Allt húsið endurmálað - 2021 rafmagnstafla endurnýjuð og almennt viðhald innan og utanhúss - sumar 2023 þak yfirfarið af eiganda - 2025 opnanleg fög í þvottahúsi og gluggi út á svalir að framan endurnýjaður, svalagólf máluð, sameiginleg innkeyrsla að húsinum malbikuð, ofn og uppþvottavél endurnýjuð.
Hér er um að ræða eign sem sameinar frábæra staðsetningu, fjölskylduvænt skipulag og góða aukaíbúð.
Nánari upplýsingar veitir Böðvar Sigurbjörnsson, lögfræðingur M.L. og lgf., í síma 660-4777 eða bodvar@fastborg.isSjá einnig:fastborg.is/Smelltu hér til að fylgjast með mér á FacebookSmelltu hér til að fylgja mér á InstagramÍ lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um skyldu kaupenda til að skoða fasteignir.
BORG fasteignasala vill því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna áður en gert er kauptilboð og leita til hæfra sérfræðinga til frekari skoðunar.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða fyrir kaupin:
Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8 / 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald kaupsamnings, veðskuldabréfs, hugsanlegt veðleyfi o.fl.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýslugjald vegna fasteignasölu samkvæmt kauptilboði