Fasteignasalan TORG kynnir: Penthouse-íbúð í nýju fjölbýlishúsi með glæsilegum þaksvölum, hjónasvítu, stóru aðalrými með eldstæði o.fl. Íbúðin er í Bakkabraut 13b, merkt: 0507 á efstu hæð með tvennar þaksvalir og tvennar svalir. Íbúðin er einstaklega glæsileg, með gólfsíðum gluggum, mikilli lofthæð, 3 svefnherbergjum (stórri Hjónasvítu), 2 baðherbergjum, stórt alrými sem skiptist í setustofu, borðstofu og eldhús, búr, þvottaherbergi, og forstofu. Alls er íbúðin skráð 180,8fm, þar af er geymsla 8,9gm og tvö bílastæði í bílakjallara, merkt: B32 og B33. Allar nánari uppl. veitir Svavar fasteignasali í GSM 623-1717, netfang svavar@fstorg.isSjá nánar heimasíðu verkefnisins, VESTURBAKKINánari lýsing: Íbúðin afhendist tilbúin til innréttinga og miðast ásett verð við þau skil, sjá nánar skilalýsingu seljanda. Einnig er hægt er að fá íbúðina fullbúna án gólfefna, sjá nánar skilalýsingu, ásett verð miðað við fullbúna er kr. 315.000.000,- Hægt er að velja milli tveggja þema, Steins eða Yls.
Allar nánari uppl. veitir Svavar fasteignasali í GSM 623-1717, netfang svavar@fstorg.isÍbúð 507: Glæsileg þakíbúð með einstöku útsýni til allra átta. Íbúðin einkennist af björtum og opnum rýmum, aukinni lofthæð og stórum gluggum sem njóta birtu og útsýnis til fulls. Rúmgott alrými sameinar stofu, borðstofu og eldhús í glæsilega heild með góðu flæði milli rýma. Eldhúsið er með stórri eyju, góðu vinnuplássi og miklu skápaplássi. Úr alrými er útgengt á rúmgóðar suður þaksvalir sem skapa einstakt útisvæði með fallegu útsýni og góðum sólskilyrðum. Möguleiki er á að setja upp heitan pott á svalir og arinn í stofu. Íbúðin er búin tveimur svefnherbergjum. Hjónasvítan er í sérálmu, það er með tveimur fatarýmum og innangengu rúmgóðu baðherbergi þar sem hægt er að ganga út á aðrar suður þaksvalir. Hitt svefnherbergið er við alrýmið og það er rúmgott og með sérsvalir með sjávarsýn til vesturs.
Jafnframt er sjónvarpsstofa sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, annað baðherbergi og sérþvottahús og góð forstofa innan íbúðar.
Kaupendur geta haft áhrif á efnisval og skipulag eignarinnar, Allar nánari uppl. veitir Svavar fasteignasali í GSM 623-1717, netfang svavar@fstorg.isNánar um Vesturbakka verkefnið: Við Vesturbakka rísa 118 vandaðar íbúðir, þar sem fágaður arkitektúr, tímalaus hönnun og nútímaþægindi fara saman. Íbúðirnar eru fjölbreyttar og einkennast af vel útfærðu skipulagi og vönduðu efnisvali. Vesturbakki stendur við Kársneshöfn, þar sem framtíðarsýn Kópavogsbæjar fyrir svæðið er að taka á sig mynd. Í skipulagi er meðal annars gert ráð fyrir veitingastað og aðstöðu til sjósunds, sem munu stuðla að lifandi og aðlaðandi hafnarsvæði.
Sameiginleg aðstaða til afþreyingar og vellíðunar verður á 1. hæð við Vesturbakka 21b og stendur íbúum hússins til boða. Þar verður vönduð líkamsræktaraðstaða, sauna og útisvæði með heitum og köldum potti. Jafnframt verður þar golfhermir og aðstaða til pílukasts.
Í bílakjallara verða 103 sérmerkt bílastæði og á lóð hússins verða 58 bílastæði til viðbótar.
Við hönnun bygginganna er lögð áhersla á þægindi og góða innivist, meðal annars með vönduðu byggingarefnavali. Allar íbúðir verða með gólfhita og sérstöku loftskiptikerfi, sem stuðlar að góðum loftgæðum.
Við fullbúin skil verða íbúðirnar útfærðar samkvæmt hönnunarþemunum Yl eða Steini, með innréttingum frá Parka eða Voke III og heimilistækjum frá Siemens. Helluborð verður með innbyggðri viftu og möguleika á þráðlausri fjarstýringu. Útfærsla eldhústækja verður mismunandi eftir íbúðum, en þar verða meðal annars sambyggðir baksturs- og örbylgjuofnar, frystar og vínkælar.
Í íbúðunum verður einnig free@home hússtjórnunarkerfi, sem gerir íbúum kleift að stýra meðal annars hitastigi, lýsingu og gardínum. Tæknimaður kemur í hverja íbúð til að stilla kerfið og leiðbeina íbúum um notkun þess.