Valborg fasteignasla kynnir vel staðsett og mikið endurnýjað einbýlishús í grónu hverfi. Um er að ræða Heiðarbrún 47, 810 Hveragerði.
Eignin telur í dag forstofu, þrjú svefnherbergi (þar af hjónasvítu), eldhús, borðstofu, stofu/hol, tvö baðherbergi, tvöfaldan bílskúr.
Eignin er samtals 203,9 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. Húsið sjálft er skráð 141,4 m² en bílskúrinn skráður 62,5 m²
Skemmtilega staðsett eign í nágrenni við leikskóla og frábærar gönguleiðir.
Nýlegar endurbætur fela m.a. í sér endurnýjað þak, þakkant, nýjar álrennur. Nýir gluggar (timbur/ál með 3 földu gleri) og hurðir, húsið klætt með Bond álklæðningu frá Byko á álundirkerfi, nýtt skólp, neysluvatnslagnir, gólfhiti, allt rafmagn í húsi endurnýjað, ný tafla. Sólpallur stækkaður og garður lagfærður. Steypt stétt milli húss og bílskúrs með hitalögnum. Að innan voru veggir og loft klædd upp á nýtt. Innfelld lýsing, Quick Step parket, nýjar innihurðir og innréttingar frá HTH í eldhúsi og á böðum, Bose hljóðkerfi í stofu. Bílskúr verður klæddur með standandi lerkiklæðningu, fyrir afhendingu eignarinnar.
Sjá staðsetningu hér.Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is. Nánari lýsing:Anddyri: Flísar á gólfi, fjórfaldur fataskápur.
Svefnherbergi (forstofuherbergi): Parket á gólf, tvöfaldur fataskápur. Gluggi til vesturs.
Hol/stofa: Tengir saman aðrar vistaverur hússins. Hátt til lofts og vítt til veggja. Skemmtileg birta kemur inn um þakglugga sem snýr til vesturs. Parket á gólfi.
Eldhús: Opið og bjart rými. Ný L-laga innréttingu frá HTH, eldunareyja. Gluggar til austurs, útgengt út á hálflokað rými við sólpall. Parket á gólfi.
Borðstofa: Við suðurenda hússins með gólfsíðum gluggum. Bose hljóðkerfi innbyggt í loft. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Upphengt wc, handlaugarinnrétting, walk-in sturta, handklæðaofn, flísar í hólf og gólf. Pláss fyrir þvottavél og þurrkara, gönguhurð út í bakgarð.
Svefnherbergi: Rúmgott rými, parket á gólfi, sexfaldur opinn fataskápur. Gluggar til austurs.
Hjónasvíta: Parket á gólfi, fjórfaldur fataskápur. Opið inn í prívat baðherbergi, upphengt wc, handlaugarinnrétting, walk-in sturta, handklæðaofn, flísar í hólf og gólf.
Útigeymsla: Óupphituð, hátt til lofts.
Steypt stétt milli húss og bílskúrs með
hitalögnumSólpallur: Staðsettur á suðurhlið hússins. Útgengi frá eldhúsi beint á pallinn sem snýr til suðurs.
Bilskúr: Tvöfaldur, tvennar bílskúrshurðar, inngönguhurð á hlið. Fyrir afhendingu verður búið að klæða skúrinn með standandi lerkiklæðningu. Steypt innkeyrsla.
Garður: Nýgrisjaður og tyrfður upp á nýtt.
Gólfhiti í húsinu.
Innfelld lýsing.
Aðrar eignir sem við seljum má sjá hér.Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, lgf, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is. Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.