69,2 fm 2ja herbergja íbúð á þriðju hæð í lyftufjölbýli við Berjavelli 6B, 221 Hafnarfirði.
Eignin skiptist í 5,7 fm geymslu og 63,5 fm íbúð, samtals 69,2 fm skv. HMS.
Nánari lýsing: Anddyri með skápum. Stofa og borðstofa í rúmgóðu og björtu alrými með útgang á svalir. Eldhús með ofni í vinnuhæð, stæði fyrir uppþvottavél og helluborði með viftu yfir. Eitt svefnherbergi með skápum. Baðherbergi með baðkari og sturtu yfir. Þvottahús með tengi fyrir þvottavél og vinnuborði m/vaski.
Sérgeymsla í kjallara.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.
Skv. seljanda hafa eftirfarandi framkvæmdir farið fram í íbúðinni:- Parket endurnýjað 2025
- Búið að endurnýja glugga og svalahurð á austurhlið.
- Búið að draga nýtt rafmagn og netsnúru í flest alla íbúðina ásamt endurnýja flest alla rofa og tengla.
- Dimmerum komið fyrir í öllum rýmum fyrir utan speglaljós í baðherbergi og þvottahúsi.
- Búið er að setja upp snjallstýringu fyrir ljós og ofna í íbúðinni.
Frábær staðsetning framarlega á Völlunum í Hafnarfirði þar sem alla helstu þjónustu má finna í göngufæri en þar má nefna leik- og grunnskóla, matvörubúðir, Ásvallalaug, íþróttasvæði Hauka og margt fleira.
Nánari upplýsingar veitir Arnór Daði Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 777-0939 / arnor@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is