Fasteignaleitin
Skráð 2. júní 2025

Grafhólar 1

RaðhúsSuðurland/Selfoss-800
191.8 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
98.900.000 kr.
Fermetraverð
515.641 kr./m2
Fasteignamat
101.050.000 kr.
Brunabótamat
89.200.000 kr.
Mynd af Snorri Sigurfinnsson
Snorri Sigurfinnsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2290148
Landnúmer
199668
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
upphaflegar
Raflagnir
upphaflegar
Frárennslislagnir
upphaflegar
Gluggar / Gler
Upphaflegir
Þak
upphaflegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sólpallar
Upphitun
Gólfhitii
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Gólfhita er stýrt í grind í bílskúr.
Snjóbræðslulagnir eru undir bílaplani en ekki er búið að tengja hana.
Heiti potturinn er skel úr rafmagnspotti sem var breytt í hitaveitupott
Stórt endaraðhús með fjórum rúmgóðum svefnherbergjum, mjög góð staðsetning. Gott verð.

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Grafhólar 1. Huggulegt, fjölskylduvænt, bjart og stórt endaraðhús með fjórum svefnherbergjum. Vel staðsett í Hólahverfi, stutt frá Sunnulækjaskóla og leikskólanum Jötunheimum.

Íbúðarhluti hússins er 156,6 fm og bílskúr er 35,2 fm. Samtals 191,8 fm.

Húsið er steníklætt timburhús byggt 2006. Rúmgóð steypt innkeyrsla. Tveir aflokaðir sólpallar og heitur pottur. Grasflöt meðfram húsgafli.

Innra skipulag: Flísalögð forstofa með fataskáp. Forstofuherbergi með fataskáp. Flísalagt forstofusalerni. Innan við forstofu er hol, eldhús, borðstofa og stofa í opnu rými. Harðparket á gólfi. Rúmgóð hvít eldhúsinnrétting. Stofan er björt og rúmgóð og þaðan er hurð út á sólpall. Herbergjagangur. Þrjú rúmgóð svefnherbergi með fataskápum. Úr hjónaherbergi er hurð út á sólpall. Harðparket á gólfum. Flísalagt baðherbergi, baðkar, sturta og innrétting. Flísalagt þvottahús með innréttingu og inn af þvottahúsi er geymsla. Innangengt í bílskúr úr þvottahúsi. Steyptur veggur er milli bílskúrs og næstu íbúðar. Ný útidyrahurð.

Mjög hentugt hús fyrir stóra fjölskyldu.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali, snorri@husfasteign.is s. 8648090

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/02/201837.350.000 kr.41.500.000 kr.191.8 m2216.371 kr.Nei
15/11/200716.950.000 kr.18.800.000 kr.191.8 m298.018 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tómasarhagi 38
Opið hús:03. maí kl 13:30-14:00
IMG_6138.JPG
Skoða eignina Tómasarhagi 38
Tómasarhagi 38
107 Reykjavík
115.6 m2
Fjölbýlishús
413
977 þ.kr./m2
112.900.000 kr.
Skoða eignina Ásholt 28
Bílastæði
Skoða eignina Ásholt 28
Ásholt 28
105 Reykjavík
124.8 m2
Fjölbýlishús
413
945 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Skoða eignina Hamravík 38
3D Sýn
Skoða eignina Hamravík 38
Hamravík 38
112 Reykjavík
132.2 m2
Fjölbýlishús
413
680 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Sogsbakki 25
Skoða eignina Sogsbakki 25
Sogsbakki 25
805 Selfoss
116 m2
Sumarhús
413
749 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin