Fasteignaleitin
Skráð 12. maí 2024
Deila eign
Deila

Lambamýri 6

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
122.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
105.900.000 kr.
Fermetraverð
866.612 kr./m2
Fasteignamat
64.800.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2024
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Útsýni
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2527710
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýbygging
Raflagnir
Nýbygging
Frárennslislagnir
Nýbygging
Gluggar / Gler
Nýbygging
Þak
Nýbygging
Svalir
28,5 fm. þaksvalir.
Upphitun
Hefðbundið ofnakerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
1 - Byggingarleyfi
Matsstig
8 - Í notkun
Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu: 

Nýja byggð á Álftanesi, 225 Garðabæ, við Lambamýri 1-6. Byggingaraðili Þingvangur ehf.

Uppbygging á 84 íbúðum í sex lágreistum fjölbýlishúsum ásamt bílastæðahúsi og verslunarhúsnæði í vesturbæ Garðabæjar, Álftanesi. Til að byrja með hefst sala á íbúðum í húsunum við Lambamýri 2, 3, 4, 5 og 6.

Vel skipulagðar og flottar þriggja til fimm herbergja íbúðir með aukinni lofthæð og sér loftskiptikerfi. Íbúðir á flottum og friðsælum stað á Álftanesi. Með öllum íbúðum í húsunum fylgir sér stæði í lokaðri bílageymslu, með sumum íbúðum fylgir svo auk þess annað sér merkt stæði utandyra. Allar íbúðir á efstu hæð eru með sér þaksvalir, aðrar íbúðir eru með hefðbundnar svalir eða verönd þar sem á við. Flestar íbúðir eru með sér þvottahús. Ofanjarðar eru svo 87 stæði sem tilheyra öllum kjarnanum við Lambamýri 1-6.  Af þeim bílastæðum eru 22 stæði sér merkt eignum í matshlutum 02-07. Hin 65 bílastæðin eru í óskiptri sameign allra eigna á lóðinni.

Sjá má skilalýsingu, verðlista og nánari upplýsingar inn á heimasíðu verkefnisins: Lambamyri.is

Smelltu á link til að skoða íbúð 301 Lambamýri 6 í 3D

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is

Nánar um eign: Lambamýri 6. Eignin er þriggja herbergja íbúð á 3. hæð ( efstu hæð ) matshlutans 07, merkt 0301, birt stærð 112,5 fm. Eigninni tilheyrir geymsla í kjallara matshlutans 07, merkt 0015, birt stærð 9,7 fm. og þaksvalir á efstu hæð, merktar 0310. Birt stærð séreignar er 122,2 fm. Íbúðinni fylgir sér stæði í bílakjallara merkt B21 og einnig sér merkt stæði ofanjarðar merkt S19.

Almennt: Allar innréttingar að undanskildum innréttingum á baðherbergjum eru sér smíðaðar, framleiddar og uppsettar af Voké III. Eldhús og fataskápar ná upp í loft. Borðplata er vönduð 19 mm. ljós með marmaraútliti. Vaskur og blöndunartæki eru svört og höldur á neðri skápum svartar. Eldhúsinnréttingunum fylgir innbyggður ísskápur með frystir, svartur ofn, innbyggð uppþvottavél og kolasíu vifta. Eldhústæki eru af tegundinni AEG, Electrolux eða sambærilegt en viftan af gerðinni Elica Lane. Baðherbergi eru flísalögð og þvottahús þar sem við á en að öðru leyti eru íbúðirnar afhentar án gólfefna. Baðherbergi eru flest frá Boxen og koma forsmíðuð að fullu frá verksmiðju og hífð inn í hús samhliða uppsteypu. Búnaður er af vandaðri gerð og allur frágangur til fyrirmyndar. Hvítar innréttingar. Tæki og salerni frá Grohe. Innihurðir eru hvítar yfirfelldar hurðir frá Parka eða sambærilegt. Útidyr eru tré frá Swedoor, söluaðili Húsasmiðjan ehf.  Sér þvottahús eru í flestum íbúðum, þá flísalögð með sömu gólfflísum og eru á baðherbergjunum. 

Burðarkerfi húsanna eru steinsteypt. Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með vönduðum álklæðningum og lerki timburklæðningum. Allir gluggar eru úr ál/tré. Þakplata hússins er steypt, einangruð að ofanverðu og með heilsoðnum pappa. Svalir eru forsteyptar með sléttu yfirborði. Handrið utanhúss er úr galvanhúðuðu stáli.

Séreignageymsla í kjallara fylgir öllum íbúðum. Sér stæði í bílageymslu fylgir öllum íbúðum, þá fylgir einnig sér merkt stæði ofanjarðar með öllum íbúðum á 3. hæð ( efstu hæð ) 

Þess ber að geta að allar íbúðir eru loftræstar með sjálfstæðu loftskiptikerfi sem blæs fersku lofti inn í íverurými og dregur loft út af baðherbergjum, þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu sem flytur varma úr út soginu yfir í ferska innblástursloftið, sem með því, minnkar upphitunarkostnað íbúða. Ferska innblástursloftið er síað til að hreinsa óhreinindi úr því áður en því er blásið í inn í íverurýmin. Einnig er hitaelement í kerfinu, hægt er að stýra hraða þeirra sem gerir notanda kleift að stilla hitastig á innblásturslofti og stilla loftmagn sem blásið er inn í íbúðina. 

Áætlaður afhendingartími er eftirfarandi:
Lambamýri 6, 15. mars 2024 eða fyrr
Lambamýri 5, 15. mars 2024 eða fyrr
Lambamýri 4, 1. júli 2024 eða fyrr
Lambamýri 3, 1. júli 2024 eða fyrr

Íbúðir við Lambamýri 1-2 koma síðar til sölu. Hægt er að fá upplýsingar og setja sig á biðlista vegna þeirra íbúða hjá söluaðila: Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 /Gulli@remax.is
Lambamýri 2, afhendingartími verður auglýstur síðar
Lambamýri 1, afhendingartími verður auglýstur síðar

Byggingaraðili Þingvangur ehf.: Þingvangur er öflugur byggingaraðili á Íslandi og hefur fyrirtækið verið í stöðugum vexti frá stofnun þess árið 2006. Félagið hefur m.a. byggt hótel, skrifstofuhúsnæði, íbúðarhúsnæði, sumarhús, iðnaðarbyggingar, nautabú og verslunarkjarna.
Arkitekt er Nordic arkitektar ehf og verkfræðihönnun er frá Conís ehf.

Kaupendur hafa verið upplýstir um að lóð gæti tekið einhverjum breytingum vegna atvinnurýma sem skráð eru í heildareigninni. T.d. gæti þurft að koma fyrir ruslageymslu fyrir atvinnurýmið sem yrði þó þannig að það yrði klætt af þannig að ekki sjáist í gáma (plast og pappa, lífrænt yrði í djúpgámum). Breytingarnar gætu jafnframt snúið að aðkomu að atvinnurýmum vegna aðkomu aðfanga og jafnvel aukin fjölda bílastæða. Jafnframt kann atvinnuhúsnæðum að vera skipt upp í smærri einingar. Kaupendur skuldbinda sig til að samþykkja allar breytingar sem snúa að mögulegum breytingum vegna ofangreinds með undirritun á t.d. teikningar eða eignaskiptayfirlýsingar eða önnur gögn ef óskað verður eftir því.
 
Kaupendur hafa verið upplýstir um að lóðin verður byggingasvæði í einhvern tíma eftir að eignir kunna að vera afhentar og að lokaúttekt kannað tefjast þangað til öll lóðin og mannvirki innan lóðar eru fullkláruð. Röskun getur orðið á stæðum í bílgeymslu og gætu kaupendur þurft að nota annað stæði en það sem þinglýst er á þeirra eign á meðan enn er unnið að því að klára heildareign og lóð. Seljandi mun ábyrgjast lokaúttekt á eigninni en afsal kann að fara fram áður en lokaúttekt á eigninni/heildareigninni fæst.

Nánari upplýsingar veita:
Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / gulli@remax.is
Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 / gunnar@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef um lögaðila er að ræða) af heildar fasteignamati.
2.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3.  Lántökugjald lánastofnunar -  Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
 
 
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2024
Fasteignanúmer
2527710
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B2
Númer eignar
1
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
8 - Í notkun

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lambamýri 6
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Lambamýri 6
Lambamýri 6
225 Garðabær
114.6 m2
Fjölbýlishús
312
872 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Lambamýri 5
Bílastæði
Skoða eignina Lambamýri 5
Lambamýri 5
225 Garðabær
118.7 m2
Fjölbýlishús
312
842 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Lambamýri 5
Bílastæði
Skoða eignina Lambamýri 5
Lambamýri 5
225 Garðabær
116.5 m2
Fjölbýlishús
312
858 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Lambamýri 4
Bílastæði
Skoða eignina Lambamýri 4
Lambamýri 4
225 Garðabær
117.5 m2
Fjölbýlishús
312
850 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache