Fasteignaleitin
Skráð 7. okt. 2024

Spánn-la Finca Resort

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
136.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
584.919 kr./m2
Fasteignanúmer
9999996
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Lóðarréttindi
Eignarlóð
FRÁBÆRT ÚTSÝNI YFIR GOLFVÖLLINN. Nýtt!
Miðbær fasteignasala og Costablancaeignir.is kynna sérlega vönduð, vel skipulögð og rúmgóð einbýlishús á einni hæð í stuttu göngufæri frá klúbbhúsinu við hinn glæsilega La Finca golfvöll. Góð sér lóð með einkasundlaug.
Einungis um 30 mín akstur suður frá Alicante flugvöllinum. Sérlega glæsileg hús með góðu alrými, þremur svefnherbergjum, fataherbergi og tveimur baðherbergjum. Mikil lofthæð í alrými gefur glæsilegt yfirbragð. Bílastæði inni á lóð.

Nánari lýsing:

Falleg aðkoma er að húsinu og skiptist það í gott eldhús, með góðri tengingu við útisvæði og stofu/borðstofu í rúmgóðu alrými með mikilli lofthæð sem gefur glæsilegt yfirbragð. Rafmagnstæki fylgja í eldhúsi.
Hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi. Auk þess tvö svefnherbergi til viðbótar á sérgangi og þar er annað baðherbergi. Gólfhiti á baðherbergjum.
Út frá stofunni er stór verönd og góður, lokaður garður með góðri aðstöðu til að njóta sólar, grilla ofl. Einkasundlaug í garðinum.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, í örstuttu göngufær við nýja og glæsilega klúbbhús á La Finca golfvellinum, 5 stjörnu golf og spa hótel sem og nýjan og glæsilegan þjónustukjarna þar sem eru gæðaveitingastaðir (Klúbbhúsið, Misto og Frijolino), auk þess sem verið er að opna nokkrara verslanir á næstu mánuðum.
Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, Las Ramblas, Lo Romero, Vistabella, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.

Akstur niður á strönd er um 20 min. Stutt er hið opna mall Habaneras og ca. 20 mín akstur er í hina risastóru verslunarmiðstöð, La Zenia Boulevard. Ennfremur er örstutt að keyra í skemmtilega bæi í næsta nágrenni, t.d. Algorfa og Ciudad Quesada.

Lúxuseign fyrir golfara og fólk sem kann að njóta lífsins.

Verð frá 535.000 Evrur. (79,900.000ISK miðað við gengi 1E=149,5ISK)

Húsið er 136,61 fm.
Verönd 54,5 fm.
Samtals 205 fm.
Möguleiki er á bílskúr/kjallara alls 181 fm að stærð. 


Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Sérlega glæsileg hús með góðu alrými, þremur svefnherbergjum, fataherbergi og þremur baðherbergjum. Stór sér lóð. Bílastæði inni á lokaðri lóð.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Traustur byggingaraðili, 

Allar upplýsingar gefur Sigfús Aðalsteinsson, löggiltur fasteignasali, gsm 8989979. sigfus@midbaer.is. Yfir 20 ára reynsla í sölu eigna á Costa Blanca húsæðismarkaðinum.


 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Miðbær fasteignasala
www.midbaer.is

Myndir (6)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skriðustekkur 16
stebbi_vefur.jpg
Skriðustekkur 16
109 Reykjavík
336.2 m2
Einbýlishús
758
528 þ.kr./m2
177.500.000 kr.
Skoða eignina Meistaravellir 33
IMG_5250.JPG
Meistaravellir 33
107 Reykjavík
83.2 m2
Fjölbýlishús
312
895 þ.kr./m2
74.500.000 kr.
Skoða eignina Þorláksgeisli 17
Bílastæði
Opið hús:28. apríl kl 17:00-17:30
Þorláksgeisli 17
113 Reykjavík
111.7 m2
Fjölbýlishús
413
742 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2 - íbúð 110
Bílastæði
Opið hús:26. apríl kl 13:30-14:00
Vetrarbraut 2 - íbúð 110
210 Garðabær
78.6 m2
Fjölbýlishús
211
950 þ.kr./m2
74.670.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin