Til leigu 455 m² bjart skrifstofuhúsnæði á jarðhæð við Höfðabakka í Reykjavík. Laust strax.
Húsnæðið getur hentað sem skrifstofu-, verslunar- eða þjónustuhúsnæði. Er með stórum gluggum sem ná niður í gólf, kerfisloft með vandaðri innbyggðri lýsingu. Gólf eru með snyrtilegum gráum flísum. Rýmið er að mestu opið og tilbúið til notkunar fyrir nýjan leigutaka. Í rýminu eru salerni og aðstaða fyrir kaffistofu (lagnir til staðar en skápa vantar). Eldtraust geymsla er innan rýmis.
Vsk húsnæði.
Hafðu samband við Ólaf Jóhannsson, löggiltan leigumiðlara í síma 824-6703 olafur@jofur.is eða Helga Má Karlsson löggiltan leigumiðlara í síma 897-7086 hmk@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina eða aðrar eignir.