Fasteignaleitin
Opið hús:10. júní kl 12:00-12:30
Skráð 9. júní 2026

Eirhöfði 7D íb.005

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
91.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
Verð
83.900.000 kr.
Fermetraverð
918.949 kr./m2
Fasteignamat
75.300.000 kr.
Brunabótamat
62.250.000 kr.
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2534476
Landnúmer
233296
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Númer íbúðar
05
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Elka Guðmundsdóttir lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna glæsilegar nýbyggingar við Eirhöfða 7 á Ártúnshöfða – einstakt tækifæri til að eignast heimili í einu metnaðarfyllsta uppbyggingarsvæði Reykjavíkur.

Ártúnshöfði stendur á tímamótum. Þar er að rísa nýr og spennandi borgarhluti þar sem nútímaleg byggð, fallegt borgarumhverfi og framúrskarandi samgöngur mynda grunn að eftirsóttu framtíðarhverfi.
Eirhöfði 7 er hluti af þessari umbreytingu og býður upp á fjölbreytt úrval vandaðra íbúða þar sem hönnun, gæði og staðsetning fara saman.  Heimasíða verkefnisins - smella hér.
Við Eirhöfða 7 býðst kaupendum að nýta sér UMBRA20 fjármögnunarleiðina, sem getur auðveldað leiðina að eigin húsnæði með aðeins 10% útborgun. Nánari upplýsingar má finna á UMBRA20

Íbúð 005 er glæsileg 3ja herbergja íbúð á jarðhæð, samtals 91,3 fm að stærð, þar af er íbúðin 81,2 fm og sérgeymsla 10,1 fm. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu ásamt sérgeymslu (nr. 0051) á sömu hæð og íbúðin.
Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, opið og bjart alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, baðherbergi, sér þvottahús og anddyri með góðu skápaplássi.
Við hönnun íbúðarinnar hefur verið lögð sérstök áhersla á hagkvæmt skipulag, góða nýtingu fermetra og vönduð efnisval. Alrýmið er rúmgott og bjart þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda samfellda heild með stórum gluggum og útgengi á sérafnotareit sem eykur rýmið enn frekar og skapar skemmtilega tengingu við útisvæðið.
Eldhúsið er sérsmíðað frá Voké-III í litnum Náttúrugrár og búið Quartz borðplötum, Miele heimilistækjum og GROHE blöndunartækjum. Hönnun eldhússins sameinar fagurfræði og notagildi með góðu vinnurými og miklu skápaplássi.
Svefnherbergin eru tvö, þar af er hjónaherbergið rúmgott með góðu skápaplássi. Aukaherbergið hentar vel sem barnaherbergi, gestaherbergi eða heimaskrifstofa. Baðherbergið er flísalagt með vönduðum innréttingum og tækjum og sér þvottahús innan íbúðarinnar eykur þægindi í daglegu lífi.
Íbúðin er hönnuð af Rut Kára og einkennist af vandaðri hönnun þar sem gæði, þægindi og ending eru höfð að leiðarljósi. Vélræn loftræsting, sérsmíðaðar innréttingar, Quartz borðplötur, Miele tæki og GROHE blöndunartæki skapa nútímalegt og glæsilegt heimili í nýju og spennandi hverfi á Ártúnshöfða.
Athugið: Myndir í auglýsingu eru teknar í sýningaríbúð verkefnisins og eru ekki af þeirri íbúð sem hér er til

Húsin standa á Hamrinum, einum hæsta og glæsilegasta stað Ártúnshöfða, með stórbrotnu útsýni yfir Reykjavík, Elliðaárvog, Esjuna og nærliggjandi náttúru. Hér njóta íbúar bæði nálægðar við borgarlífið og einstakrar tengingar við útivistarsvæði Elliðaárdals, strandstíga og fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir.
Við hönnun verkefnisins hefur verið lögð sérstök áhersla á nútímalegan arkitektúr, vandaðan frágang og vel skipulagðar íbúðir sem henta jafnt einstaklingum, pörum og fjölskyldum. Sameiginleg svæði eru hönnuð með þægindi og samfélag í huga og undir húsunum er bílakjallari með góðu aðgengi að íbúðum.

Íbúðirnar einkennast af björtu og opnu skipulagi, stórum gluggaflötum og vönduðum efnisvali. Sérsmíðaðar innréttingar, gæða heimilistæki og nútímalegar lausnir.
Á næstu árum mun Ártúnshöfði þróast í eftirsótt íbúðasvæði með verslun, þjónustu, veitingastöðum, almenningssamgöngum og fjölbreyttu mannlífi í göngufæri. Hér gefst einstakt tækifæri til að kaupa í framtíðarsvæði Reykjavíkur á meðan uppbyggingin er rétt að hefjast.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.


Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan TORG
https://www.fstorg.is

Myndir (50)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skipholt 28
Opið hús:15. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Skipholt 28
Skipholt 28
105 Reykjavík
70.7 m2
Fjölbýlishús
312
890 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Einigrund 8
Skoða eignina Einigrund 8
Einigrund 8
300 Akranes
67.4 m2
Fjölbýlishús
211
662 þ.kr./m2
44.600.000 kr.
Skoða eignina Skyggnisholt 14
Skoða eignina Skyggnisholt 14
Skyggnisholt 14
190 Vogar
106.6 m2
Fjölbýlishús
413
637 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Sjafnarvellir 15
Bílskúr
Skoða eignina Sjafnarvellir 15
Sjafnarvellir 15
230 Reykjanesbær
182.7 m2
Parhús
624
547 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin