Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (bjarni@remax.is/s:662-6163) kynnir glæsilega bjarta íbúð í lyftuhúsi á þriðju hæð með stórkostlegu útsýni í Áslandinu í Hafnarfirði. Sérinngangur af svölum. Tvennar svalir. Bílastæði í bílageymslu með tengi fyrir rafhleðslu. Samkvæmt HMS er íbúðin 106 m² og þar af er 7,9 m² geymsla. Skipting eignarinnar: Anddyri, tvö svefnherbergi, stofa, borðstofa, eldhús, baðherbergi, þvottahús og geymsla auk reglubundinnar sameignar og stæðis í lokaðri bílageymslu.
Helstu kostir eignarinnar:- Stórar svalir sem snúa í suður
- Borðstofa með með glæsilegu útsýni í átt að Reykjavík.
- Vönduð eldhúsinnrétting frá Brúnás, steinn á borðum.
- Nýtt BOEN eikarparket frá Ebson á íbúðinni
- Þvottahús, innan íbúðar.
- Einkabílastæði í upphituðum bílakjallara með rafhleðslu
Nánari lýsing á eigninni:Anddyri: með fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús: með vandaðri eikarinnréttingu, útdraganleg Grohe blöndunartæki, uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, steinn á borðum og parket á gólfi.
Borðstofa: við hlið eldhússins með parketi á gólfi og fallegum hornglugga með glæsilegu útsýni í átt að Reykjavík.
Stofa: með parketi á gólfi og útgengi út á stórar suðursvalir og minni vestur svalir.
Svefnherbergi I: með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II: með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf, innrétting, sturtuklefi, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús: með skáp, skolvaski og flísum á gólfi.
Geymsla: 7,9 m² sérgeymsla í sameign auk sameiginlegrar hjólageymslu.
Bílastæði: sérstæði í upphitaðri bílageymslu merkt B-04 og opin bílastæði fyrir framan húsið. Staurar fyrir rafmagnshleðslu eru á bílaplani og tengi fyrir rafmagnshleðslu í bílastæðinu.
Staðsetning í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í skóla og leikskóla og fallegar gönguleiðir.
Þetta er virkilega falleg eign á vinsælum stað með einstöku útsýni. Vel við haldin eign í góðu fjölbýli. Byggingaverktakar Gunnar og Ólafur ehf.
Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar, sjá upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.