STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Áhugaverða 3ja til 4ra herbergja 111,4 fm íbúð á þriðju hæð í snyrtilegu fjölbýli ásamt bílskúr. Íbúð sem býður uppá skemmtilega möguleika og hús sem er búið að fá mikið viðhald og leigutekjur sem dekkuðu stóran hluta viðhalds. Sameignin er mjög björt og snyrtileg.
Lykilpunktar varðandi húsið og íbúðina: Í sameign er búið að skipta um gler og glugga ásamt því að skipt var um teppi og sameign máluð fyrir nokkrum árum.
Húsfélagið á íbúð á jarðhæð sem þau leigja út og renna leigutekjur í hússjóð.
Gluggar og gler endurnýjaðir í allri sameign, múrviðgerðir og málun, skipt um þakpappa, þakjárn og túður.
Dren endurnýjað, steyptar nýjar tröppur fyrir framan anddyri, stétt fyrir framan hús endurnýjuð með hitalögn.Múrviðgerðir og málun á norðurgafli og vesturhlið, skipt um gluga, gler og svalahandrið, hurðir endurnýjaðar.
Stofnlagnir undir húsinu hafa verið endurnýjaðar sem og kaldavatnslagnir í sameign.
Búið að setja hljóðeinangrandi eldvarnarhurðar á íbúðir í sameign.
Einnig er búið að skipta um gler og glugga í íbúð og setja nýja svalahurð. Með nýju gluggunum heyrist lítið sem ekkert í umferð frá Miklubraut.
Örstutt er í Kringluna og aðra þjónustu í grenndinni.
Íbúðin er 86,1 fm (merkt 01-0302), geymsla er 5,0 fm (merkt 01-0007) og bílskúr er 20,3 fm (merkt 04-0107) samtals er eignin skráð 111,4 fm skv. skráningu Þjóðskrá Íslands.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is og
Hallveig Jónsdóttir, Nemi í löggildingu, í síma 699-0496, netfang hallveig@stofnfasteignasala.isForstofa er með parketi á gólfi ásamt upphengi, gæti verið skápur en hann var fjarlægður.
Hol er með parketi á gólfi og þar er nú lítil vinnuaðstaða, í sumum íbúðum hefur þar verið bætt við þriðja herberginu.
Stofa er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á vestur svalir.
Eldhús er með parketi á gólfi, hvítir neðri skápar sem hafa verið endurnýjaðir öðru megin en efri skápar eru upprunalegir, flísar á milli efri og neðri skápa.
Svefnherbergin eru tvö og eru með parketi á gólfi, skápar í aðalsvefnherbergi en laus skápur í barnaherbergi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, wc, baðkar með sturtu, handklæðaofn, gluggi með opnanlegt fag, skápar og skápar undir vask.
Þvottahús þvottavél á baðherbergi.
Geymsla er í sameign í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign í kjallara.
Bílskúr er með stein á gólfi.