Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali kynnir 291fm einbýlishús með aukaíbúð og 62,2fm tvöföldum bílskúr, samtals 353,2fm að Hellishólum, Hvolsvelli: Húsið er 3.hæðir: kjallari, miðhæð og ris. Hver hæð er með ca 97fm gólfflöt. Stór eignarlóð. Nánari lýsing: Níu svefnherbergi, þrjú baðherbergi, tvö eldhús, tvær stofur, tvö þvottahús, geymsla og lítið hol undir stiga með tengi fyrir þvottavél. Í kjallara er búið að innrétta íbúð með tveimur svefnherbergjum, eldhús, stofa, baðherbergi, aðstaða fyrir þvottavélar undir stiga. Í kjallara eru líka tvö önnur svefnherbergi, geymsla með þvottahúsi, gangur, forstofa og sér inngangur í kjallara.
Aðal inngangur hússins er á miðhæð. Þar er forstofa, tvær stofur, stórt eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Risið er með 4 svefnherbergjum, mjög stórum fataskáp og baðherbergi. Parket á flest öllum gólfum nema flísar í hólf og gólf á baðherbergjum. Vaskur í öllum svefnherbergjum. 2005 var húsið mikið endurnýjað, skipt um alla glugga (viðargluggar) skipt um útidyrahurðir, sett dren í kringum allt húsið, klætt með viðarklæðningu yfir stein klæðningu, nýtt þak sett á með brenndu bárujárni, öll vatnsbretti eru glædd með áli, allar lagnir voru endurnýjaðar, gifs veggir og gifs í lofti í risi. Eldhúsinnrétting í aðalíbúð endurnýjuð 2019 og 2020 í auka íbúð. Innrétting í þvottahúsi á miðhæð endurnýjuð 2021, steyptur sólpallur með viðar skjólveggum reistur 2021. Varmadæla upppsett, sér um heitt neysluvatn og hita fyrir húsið og golfhita í bílskúrinn. Lóðin er 2.982fm eignarlóð með mikið af stórum trjám.
Húsið er einstaklega skemmtilega staðsett með tilliti til afþreyingar. Í göngufæri er 9 holu golfvöllur, klúbbhús, veitingahús, bar, laxá og veiðivatn. Seljalandsfoss, Skógarfoss og Þórsmörk eru innan seilingar auk Landeyjahafnar. 10mín akstur er í helstu þjónustu á Hvolsvelli. Grunnskólabörn eru sótt upp að dyrum. Sorpubíll sækir allt rusl. Atvinnu tækifæri í göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir: Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali á bjarni@remax.is eða í síma 662-6163
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.Remax fasteignasala sími 477-7777. www.remax.is1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.