Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu Álalæk 26 íbúð 201, 800 Selfoss:Um er að ræða bjarta og fallega 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á efri hæð í snyrtilegu fjórbýlishúsi. Birt stærð eignar (201) samkvæmt fasteignaskrá HMS er 81,3 fm. Húsið er á tveimur hæðum, byggt úr forsteyptum einingum og málað að utan í hvítum lit. Bílaplan er malbikað, lóð þökulögð og búið er að helluleggja og ganga frá lóð við húsið. Eignin er vel staðsett miðsvæðis á Selfossi og stutt er í alla almenna þjónustu, leik-, grunn- og framhaldsskóla og útivist.
Eignin skiptist í forstofu, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi, gang og þvottahús / geymsla.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXNánari lýsing:Forstofa: Með innfeldum hvítum fataskáp, flísar á gólfi.
Stofa / borðstofa: Í alrými er björt og rúmgóð stofa / borðstofa, útgengi út á stórar suðvestur svalir, sérsniðin strimla gluggatjöld, parket á gólfi.
Eldhús: Í alrými er eldhús er með hvítri innréttingu, ísskápur og uppþvottavél, helluborði, bakaraofn, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott, hvítir fataskápar, parketi á gólfi.
Svefnherbergi 1: Rúmgott, hvítur fataskápur, parket á gólfi. Skráð sem geymsla á teikningu.
Baðherbergi: Með hvítri innréttingu, sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn, flísar á gólfi og inn í sturtu.
Þvottahús / geymsla: Inn af forstofu er þvottahús með vinnuborði og vask, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi.
Gangur: Parket á gólfi.
Húsið: Álalækur 26 er steinsteypt fjórbýlishús á tveimur hæðum. Hiti í gólfi.
Lóð: Lóðin Álalækur 26-34 er 4210,7 fm og er eignarlóð. Bílaplan er malbikað, lóð þökulögð og búið er að helluleggja og ganga frá lóð við húsið, malbikuð bílastæði eru í sameign allra.
Hér er um að ræða nýlega og falleg eign, staðsett í botnlanga með sólríkum svölum sem snúa í suðvestur. Eign sem vert er að skoða nánar.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.