Glæsileg 162,9 fm 5 herbergja íbúð á jarðhæð með bílskúr við Miðvang 92 í Hafnarfirði.
Eignin skiptist þannig að íbúðin sjálf er 137,0 fm og bílskúrinn 25,9 fm, samtals 162,9 fm skv. HMS.
Nánari lýsing: Forstofa með skápum og fataherbergi innaf, flísar á gólfi. Flísalagt gestasalerni. Sjónvarpshol með parketi á gólfi. Eldhús með viðarinnréttingu, borðkrókur, ofn í vinnuhæð,khelluborð m/háf yfir, flísar á gólfi og á veggjum. Þvottahús er innaf eldhúsinu. Rúmgóð og björt stofa og borðstofa. Gangur, útgengt á skjólgóðan sólpall. Fjögur svefnherbergi eru á ganginum, þ.m.t. hjóna, skápar í öllum. Baðherbergi með innréttingu, baðkar m/sturtu yfir, flísar á gólfi og veggjum.
Bílskúrinn er með hita, rafmagni, vatni og hurðaopnara.
Lóðin er snyrtilega frágengin, steypt plan, gras á lóð og sólpallur.
Framkvæmdir undanfarin ár skv. eigendum:- Skipt var um gler og gluggar yfirfarnir í stofu og herbergisgangi árið 2011.
- Skipt var um gler í gluggum í barnaherbergjum árið 2024.
- Nýtt harðparket árið 2020.
- Húsið sprunguviðgert, múrað og málað árið að utan árið 2024.
- Skipt um þakjárn og pappa, settar nýjar þakrennur og strompur fjarlægður árið 2022.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 772-7376 / aron@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is