Mikið endurnýjuð hús (tvö hús) sem breytt var í gistiheimili en hefur ekki verið nýtt sem slíkt undanfarið og leyfi til gistireksturs er ekki til staðar eins og staðan er í dag. Húsin voru áður verbúðir og eru skráð sem slík hjá Þjóðskrá Íslands. Verbúðirnar hafa verið endurnýjaðar mikið og er þar í dag 13 herbergi ásamt tveimur íbúðum. Nánar tiltekið er um að ræða 288 m2 og 215 m2 hús byggð úr steypu og timbri árið 1962 skv. fasteignskrá. Í öðru húsinu eru á efri hæð 7 herbergi, öll með sér baðherbergi og á gangi er einnig lítil geymsla, en búið er að endurnýja innihurðir. Á neðri hæð er lítil gestamóttaka, borðsalur og eldhús fyrir gesti, tvö lítil salerni með handlaug eru við gestamóttöku. Góð starfsmannaaðstaða með tveimur svefnherbergjum, baðherbergi og opnu eldhús/stofurými er einnig á neðri hæð. Þar er einnig sérinngangur fyrir starfsmenn. Í hinu húsinu er búið að innrétta tvær íbúðir á annarri hæð, báðar með sérinngangi. Annars vegar er íbúð er með 3 svefnherbergjum, eldhúsi og sameiginlegu borðstofu/stofu rými og hinsvegar stúdíó-íbúð með lítilli eldhúsinnréttingu og baðherbergi. Flísar og parket eru á gólfum í íbúðum. Á neðri hæð eru 6 herbergi með tveimur sameiginlegum baðherbergjum. Búið er að endurnýja þak, útidyrahurðir og alla glugga í báðum húsum. Einnig hafa þau verið einangruð og klædd að utan með bárujárni. Aðkoma er snyrtileg en fyrir framan húsin er 605 m² trébryggja frá 1962 skv. fasteignaskrá sem fylgir húsunum.
Byggt 1962
1128.4 m2
18 Herb.
16 Svefnh.
10 Baðherb.
Þvottahús
Sérinng.
Fasteignanúmer
2168791
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
1
Hæðar í húsi
2
Hæðar í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Gott
Þak
Lítur vel út
Upphitun
Rafmagn
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
8 - Í notkun
Gallar
Eignin er á hættusvæði C vegna ofanflóða.
Mikið endurnýjuð hús (tvö hús) sem breytt var í gistiheimili en hefur ekki verið nýtt sem slíkt undanfarið og leyfi til gistireksturs er ekki til staðar eins og staðan er í dag. Húsin voru áður verbúðir og eru skráð sem slík hjá Þjóðskrá Íslands. Verbúðirnar hafa verið endurnýjaðar mikið og er þar í dag 13 herbergi ásamt tveimur íbúðum. Nánar tiltekið er um að ræða 288 m2 og 215 m2 hús byggð úr steypu og timbri árið 1962 skv. fasteignskrá. Í öðru húsinu eru á efri hæð 7 herbergi, öll með sér baðherbergi og á gangi er einnig lítil geymsla, en búið er að endurnýja innihurðir. Á neðri hæð er lítil gestamóttaka, borðsalur og eldhús fyrir gesti, tvö lítil salerni með handlaug eru við gestamóttöku. Góð starfsmannaaðstaða með tveimur svefnherbergjum, baðherbergi og opnu eldhús/stofurými er einnig á neðri hæð. Þar er einnig sérinngangur fyrir starfsmenn. Í hinu húsinu er búið að innrétta tvær íbúðir á annarri hæð, báðar með sérinngangi. Annars vegar er íbúð er með 3 svefnherbergjum, eldhúsi og sameiginlegu borðstofu/stofu rými og hinsvegar stúdíó-íbúð með lítilli eldhúsinnréttingu og baðherbergi. Flísar og parket eru á gólfum í íbúðum. Á neðri hæð eru 6 herbergi með tveimur sameiginlegum baðherbergjum. Búið er að endurnýja þak, útidyrahurðir og alla glugga í báðum húsum. Einnig hafa þau verið einangruð og klædd að utan með bárujárni. Aðkoma er snyrtileg en fyrir framan húsin er 605 m² trébryggja frá 1962 skv. fasteignaskrá sem fylgir húsunum.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.