VALBORG fasteignasla kynnir í einkasölu Heiðmörk 47A, 810 Hveragerði.
Um er að ræða glæsilega og vel staðsetta steinsteypta tveggja hæða parhúsaíbúð, samtals 169,3 m2 að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Fermetrar eignarinnar skiptast í 139,3 m2 íbúðarhluta og 30 m2 bílskúr.
Eignin telur forstofu, alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús, geymslu og sambyggðan bílskúr.
Steypt innkeyrsla, afgirtur pallur fyrir aftan hús með heitum potti.
Eignin er staðsett miðsvæðis í Hveragerði á svökölluð Grímsstaðareit, en þaðan er stutt í grunnskóla, heilsugæslu, sundlaug, veitingahús og aðra þjónustu bæjarins.
Sjá staðsetningu hér.
Sjá skipulag Grímsstaðareitsins hér.
Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.Lýsing eignar:
Forstofa með fjórföldum fataskáp. Flísar á gólfi.
Til vinstri frá forstofu er svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Stigi upp á efri hæð beint á móti forstofu en alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu til hægri frá forstofu.
Svefnherbergi I með tvöföldum fataskáp og glugga til vesturs.
Baðherbergi með handlaug, upphengdu wc, sturtu, handklæðaofni, glugga til austurs, flísalagt gólf og veggir.
Þvottahús með góðri innréttingu. Gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, skolvaskur, hurð út á pall og einnig er innangengt í bílskúr úr þvottahúsi.
Bílskúr með góðri innkeyrsluhurð, geymsla í enda skúrsins með glugga til austurs. Samtals er bílskúrinn 30 m
2 með geymslunni.
Alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu.
Eldhús með góðri innréttingu, veggofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél, eldunareyja með spanhelluborði og loftháfi. Gluggi snýr að innkeyrslu.
Borðstofa með glæsilegum hornglugga til suðurs og vesturs.
Stofan er björt með útgengi til austurs á pall um rennihurð. Gluggar til suðurs og austur.
Stór og mikill afgirtur
pallur á suður- og austurhlið hússins. Á honum er
heitur pottur og
pergóla.
Stigi er milli hæða en við millipall er glæsilegur gluggi til austurs sem hleypir inn mikilli birtu.
Á efri hæð er baðherbergi og fjögur svefnherbergi. Þau eru þrjú samkvæmt teikningu en sjónvarpsholi hefur verið breytt í svefnherbergi. Auðvelt að breyta til baka.
Svefnherbergi II með tvöföldum fataskáp og glugga til suðurs.
Svefnherbergi III með tvöföldum fataskáp og glugga til suðurs.
Baðherbergi með sturtu, upphengdu wc, baðkari undir kvistglugga, handklæðaofn og góð innrétting með handlaug.
Hjónaherbergi með fimmföldum fataskáp og glugga til norðurs.
Sjónvarpsrými hefur verið breytt í
fimmta svefnherbergið en úr því er útgengt á 30 m2 hellulagðar
svalir sem eru staðsettar yfir bílskúr.
Loft efri hæðar eru klædd með
þiljum og
innfelld lýsing er á hæðinni.
Gólfhiti er á neðri hæðinni en ofnar á þeirri efri.
Snjóbræðsla í steyptri stétt fyrir framan hús og bílaplani. Lögn fyrir rafhleðslu til staðar.
Gólfefni:
Flísar á forstofu, baðherbergjum og þvottahúsi.
Parket á herbergjum, gangi, alrými og stiga.
Aðrar eignir sem við seljum má sjá
hér.
Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum
kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.