Sunna fasteignasala, Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs. og Arnþór Jónsson, lfs., kynna í einkasölu glæsilega og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á 6. hæð (efstu) í lyftuhúsi við Laugarnesveg 87 í Reykjavík. Yfirbyggðar sólríkar suður-svalir, sér inngangur af utanáliggjandi svölum og stæði í lokaðri bílageymslu. Hús og sameign er öll hin vandaðasta og húsið klætt með viðhaldslítilli klæðningu. Gott aðgengi er að húsinu, næg bílastæði á lóð og snjóbræðsla í stétt. Frábær staðsetning þar sem stutt er út á stofnæðar og alla helstu þjónustu.
Nánari lýsing: Allar innréttingar íbúðarinnar eru sérsmíðaðar og hannaðar af arkitekt. Granít steinn er á borðplötum í eldhúsi. Gegnheilt eikarparket með sérstakri hljóðeinangrun er í herbergjum og alrými, og ljós náttúrusteinn á eldhúsi, baðherbergi, þvottahúsi og forstofu.
Forstofa með fataskáp, náttúrusteinn á gólfi. Stofa og borðstofa eru mjög rúmgóðar í björtu og opnu rými, gegnheilt parket á gólfi. Sérsmíðaður sjónvarpsskápur í stíl við innréttingar eignarinnar fylgir eigninni. Útgengt út á yfirbyggðar svalir sem snúa í suður. Eldhús með rúmgóðri innréttingu, góðri vinnuaðstöðu og flísar á milli skápa. Innfelldur ísskápur og uppþvottavél. Borðkrókur í eldhúsi við glugga. Náttúrusteinn á gólfi. Granít borðplötur. Tenglum fyrir rafmagnstæki hefur verið komið haganlega fyrir og eru ekki sýnilegir. Þvottahús er inn af eldhúsi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt skolvaski. Náttúrusteinn á gólfi. Nýtist einnig sem búr/geymsla. Baðherbergi flísalagt með rúmgóðri innréttingu og baðkari, handklæðaofn. Náttúrusteinn á gólfi. Hjónaherbergi með rúmgóðum fataskápum, gegnheilt parket á gólfi. Svefnherbergi, gegnheilt parket á gólfi. Geymsla í kjallara er mjög rúmgóð (8,2 fm). Einnig er sameiginleg hjóla-og vagnageymsla, og önnur sameiginleg geymsla í kjallara hússins.
Helstu endurbætur: 2020: Íbúðin máluð, parket slípað og lakkað. 2021: Svalir yfirbyggðar og glerskermun. 2026: Skemmd í stofuglugga lagfærð.
Eignin er einstaklega vel með farin og hefur verið í eigu sömu aðila frá upphafi. Sameign er afar snyrtileg og viðhaldi vel sinnt. Engar framkvæmdir eru fyrirhugaðar og hússjóður er kr. 30.614. Húsið var byggt árið 2001 af Íslenskum aðalverktökum og er allt hið vandaðasta.
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is og Arnþór Jónsson lfs. í síma 663-3030 og netfanginu arnthor@sunnafast.is.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.