Fasteignaleitin
Skráð 8. júlí 2026

Sunnubraut 21

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
337 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
216.450.000 kr.
Brunabótamat
153.400.000 kr.
GT
Guðmundur Th. Jónsson
Lögg. fasteiganasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2065452
Landnúmer
116120
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Þakjárn
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd til suðurs
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu fallegt og vel skipulagt 337,0 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum á frábærlega staðsettri 714,0 fermetra skjólsælli lóð niður við sjó á sunnanverðu Kársnesinu.  

Eignin verður sýnd áhugasömum aðilum sem panta tíma miðvikudaginn 15. júlí á milli kl. 17.00 og 18.00
Nauðsynlegt er að senda tölvupóst á fastmark@fastmark.is til að staðfesta mætingu á framangreindum tíma.

Eignin er mikið upprunaleg hið innra með miklum sérsmíðuðum og vel með förnum innréttingum sem m.a. eru úr Tekki. 

Efri hæð hússins er 221,0 fermetrar að stærð og neðri hæð eignarinnar er 75,0 fermetrar að stærð auk 41,0 fermetra bílskúrs. 

Lýsing eignar:

Forstofa, teppalögð og með fataskápum.
Hol, teppalagt. Úr holi er stigi niður á neðri hæð hússins.
Gestasnyrting, innaf holi, er með glugga, dúklagt gólf og innrétting.
Samliggjandi stofur, stórar, teppalagðar og bjartar með miklum gluggum til suðurs og einstöku sjávarútsýni. Fallegur arinn er í stofum og granít í gluggakistum. Úr stofum er útgengi á stóra flísalagða og skjólsæla verönd til suðurs og þaðan niður á lóð.
Borðstofa, er innaf holi og innangengt í hana þaðan og úr eldhúsi. Borðstofa er parketlögð og rúmgóð.
Eldhús, stórt, korklagt og með góðri borðaðstöðu. Mjög fallegar upprunalegar og vel með farnar sérsmíðaðar innréttingar í eldhúsi sem eru að hluta úr Tekki, tengi fyrir uppþvottavél og ruslalúga.
Svefngangur, teppalagður.
Hjónaherbergi, stórt, teppalagt og með miklum og fallegum skápum úr Tekki. Úr hjónaherbergi er útgengi á stóra flísalagða og skjólsæla verönd til suðurs og þaðan niður á lóð.
Baðherbergi I, innaf hjónaherbergi, er með glugga, flísalagt gólf og veggir, innrétting og sturta.
Barnaherbergi I,  korklagt og með fataskápum.
Barnaherbergi II, korklagt og með fataskápum.
Barnaherbergi III, korklagt og með fataskápum.
Baðherbergi II, með glugga, flísalagt gólf og veggi og baðkar.

Gengið er niður á neðri hæð hússins úr holi efri hæðar, en einnig er sérinngangur í neðri hæðina frá austri.
Forstofa, dúklögð og með miklum fataskápum.
Barnaherbergi IV, dúklagt og rúmgott.
Þvottaherbergi, stórt og með glugga, dúklagt gólf og vaskur.
Geymsla, innaf forstofu, er dúklögð og með hillum.
Hol, parketlagt.
Geymsla, innaf holi er dúklögð og með hillum.

Bílskúr, með aðkomu frá austri, er með gluggum, göngudyrum og innkeyrsluhurð, rennandi vatni og hita.

Húsið að utan lítur ágætlega út.  Upphaflega var húsið með flötu þaki, en í kringum árið 1981 var sett nýtt hallandi þak á húsið og er bárujárn á þakinu. 

Lóðin, sem er 714,0 fermetrar leigulóð frá Kópavosbæ, er fullfrágengin með hellulögðum stéttum, steyptri innkeyrslu, tyrfðum flötum og trjágróðri.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á mjög fallegum útsýnisstað við opið svæði niður við sjó á sunnanverðu Kársnesinu.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Ekki er um að ræða opið hús heldur verður eignin sýnd í fyrsta sinn miðvikudaginn 15. júlí á milli kl. 17 og 18 eingöngu þeim sem senda tölvupóst og staðfesta mætingu. 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (61)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Brekkugerði 8
Bílskúr
Skoða eignina Brekkugerði 8
Brekkugerði 8
108 Reykjavík
682.8 m2
Einbýlishús
137
Fasteignamat 331.750.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Sogavegur 210
Bílskúr
Skoða eignina Sogavegur 210
Sogavegur 210
108 Reykjavík
268.1 m2
Einbýlishús
1026
540 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Hörpugata 1
Skoða eignina Hörpugata 1
Hörpugata 1
102 Reykjavík
332.9 m2
Einbýlishús
1035
Fasteignamat 203.900.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Hlyngerði 10
Skoða eignina Hlyngerði 10
Hlyngerði 10
108 Reykjavík
277 m2
Einbýlishús
825
Fasteignamat 175.450.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin