Fasteignasalan TORG kynnir: Horníbúð í nýju fjölbýlishúsi með sjávarútsýni og glæsilegum 40,1 fm þaksvölum í suðvestur, 27,0 fm svölum í vestur og frístundaskúr í kjallara. Íbúðin er einstaklega glæsileg með gólfsíðum gluggum og mikilli lofthæð. Eignin skiptist í anddyri, eldhús, borðstofu, stofu, sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi, þar af ein hjónasvíta með baðherbergi, tvö baðherbergi og þvottahús. Alls er íbúðin skráð 230,9 fm, þar af er íbúðin sjálf 190,8 fm, frístundaskúr (Nr.005) 40,1 fm ásamt tveimur bílastæðum í bílakjallara, merkt: B58 og B59. Allar nánari uppl. veitir Matthildur Sunna fasteignasali í GSM: 690-4966 netfang matthildur@fstorg.is
Nánari lýsing íbúðar 420: Íbúðin afhendist tilbúin til innréttinga og miðast ásett verð við þau skil, sjá nánar skilalýsingu seljanda. Einnig er hægt er að fá íbúðina fullbúna án gólfefna, sjá nánar skilalýsingu, ásett verð miðað við fullbúna er kr. 370.000.000,- Hægt er að velja milli tveggja þema, Steins eða Yls. Allar nánari uppl. veitir Matthildur Sunna fasteignasali í GSM: 690-4966 netfang matthildur@fstorg.is
Íbúð 420: Rúmgóð horníbúð með þaksvölum til suðvesturs þar sem hægt er að njóta óhindraðs útsýnis. Eignin skiptist í forstofu með fataskápum. Bjart alrými með rúmgóðri stofu, sjónvarpskrók, borðstofu og eldhúsi með eyju. Möguleiki á að setja upp arin í stofu og heitan pott á svalir.
Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, þar á meðal hjónasvíta með innangengu með fataherbergi og sérbaðherbergi. Einnig er annað baðherbergi og sérþvottahús innan íbúðar. Íbúðin er búin snjalllausnum sem miða að þægindum. Innréttingar eru frá Voke III og heimilistæki frá Siemens.
Kaupendur geta haft áhrif á efnisval og skipulag eignarinnar, allar nánari uppl. veitir Matthildur Sunna fasteignasali í GSM: 690-4966 netfang matthildur@fstorg.is
Nánar um Vesturbakka verkefnið: Við Vesturbakka rísa 118 vandaðar íbúðir, þar sem fágaður arkitektúr, tímalaus hönnun og nútímaþægindi fara saman. Íbúðirnar eru fjölbreyttar og einkennast af vel útfærðu skipulagi og vönduðu efnisvali. Vesturbakki stendur við Kársneshöfn, þar sem framtíðarsýn Kópavogsbæjar fyrir svæðið er að taka á sig mynd. Í skipulagi er meðal annars gert ráð fyrir veitingastað og aðstöðu til sjósunds, sem munu stuðla að lifandi og aðlaðandi hafnarsvæði.
Sameiginleg aðstaða til afþreyingar og vellíðunar verður á 1. hæð við Vesturbakka 21b og stendur íbúum hússins til boða. Þar verður vönduð líkamsræktaraðstaða, sauna og útisvæði með heitum og köldum potti. Jafnframt verður þar golfhermir og aðstaða til pílukasts.
Í bílakjallara verða 103 sérmerkt bílastæði og á lóð hússins verða 58 bílastæði til viðbótar.
Við hönnun bygginganna er lögð áhersla á þægindi og góða innivist, meðal annars með vönduðu byggingarefnavali. Allar íbúðir verða með gólfhita og sérstöku loftskiptikerfi, sem stuðlar að góðum loftgæðum.
Við fullbúin skil verða íbúðirnar útfærðar samkvæmt hönnunarþemunum Yl eða Steini, með innréttingum frá Parka eða Voke III og heimilistækjum frá Siemens. Helluborð verður með innbyggðri viftu og möguleika á þráðlausri fjarstýringu. Útfærsla eldhústækja verður mismunandi eftir íbúðum, en þar verða meðal annars sambyggðir baksturs- og örbylgjuofnar, frystar og vínkælar.
Í íbúðunum verður einnig free@home hússtjórnunarkerfi, sem gerir íbúum kleift að stýra meðal annars hitastigi, lýsingu og gardínum. Tæknimaður kemur í hverja íbúð til að stilla kerfið og leiðbeina íbúum um notkun þess.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3.800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.
eignarhús.