Fasteignaleitin
Opið hús:11. nóv. kl 17:30-18:00
Skráð 30. okt. 2026

Hraungata 19

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
93.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
908.994 kr./m2
Brunabótamat
82.300.000 kr.
Byggt 2022
Svalir
Hleðslustöð
Margir Inng.
Fasteignanúmer
25152215
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Margir inngangar

Glæsileg og björt 3ja herbergja útsýnisíbúð með stæði í lokuðum bílakjallara í Urriðaholti

Einstaklega falleg og björt 3ja herbergja íbúð með fallegu útsýni, góðum svölum og sérbílastæði í lokuðum bílakjallara.
Eignin er í vönduðu og fallegu fjögurra hæða fjölbýlishúsi með lyftu við Hraungötu 19 í Urriðaholti í Garðabæ.

Eignin getur verið laus við kaupsamning!!

Íbúðin er samtals 93,4 fm, þar af er íbúðarrýmið 87,1 fm og sérgeymsla í sameign 6,3 fm.
Eignin býður upp á björt og vel skipulögð rými, vandaðar innréttingar frá Axis, útsýnissvalir og
þægindi á borð við sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu með hleðslustöð. Hægt er að ganga inn í svalainngang frá 1. hæð 
og einnig 3. hæð og því aðgengi í íbúðina mjög þægilegt.
Innbyggð lýsing með dimmer í forstofu, hluta stofu, og í hjónaherbergi.

Nánari lýsing
Forstofa:

Sérinngangur er af svölum. Í forstofu eru fataskápar og parket á gólfi.

Eldhús og stofa: Bjart og opið alrými þar sem eldhús og stofa mynda notalega heild.
Úr stofu er gengið út á rúmgóðar útsýnissvalir sem eru 5,9 fm.
Eldhúsinnréttingin er falleg og sérsmíðuð frá Axis. Þar er helluborð, ofn í vinnuhæð, innfelld uppþvottavél og stæði fyrir ísskáp.
Svalir eru rúmgóðar sem snúa í suðvestur með óhindruðu útsýni. Búið er að teikna upp svalalokanir fyrir húsið.

Hjónaherbergi: Rúmgott, 15,7 fm herbergi með fataskápum.

Barnaherbergi: 11,8 fm herbergi með fataskáp.

Baðherbergi: Falleg innrétting frá Axis, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta.
Flísar eru á gólfi og hluta veggja.

Þvottahús: Þvottahús, 3,1 fm, með stæði fyrir þvottavél og þurrkara, vaski og skáp.
Geymsla: Sérgeymsla í sameign, 6,3 fm.
Sameign: Hjóla- og vagnageymsla er í sameign hússins.
Bílastæði: Sérstæði merkt B03 í lokaðri bílageymslu með hleðslustöð.


Vandað fjölbýlishús á góðum stað í Urriðaholtinu. Húsið er fjögurra hæða fjölbýlishús og er klætt að utan með 13 íbúðum, lyftu og lokaðri bílageymslu.
Sérstakt loftræstikerfi er í hverri íbúð sem stuðlar að betri loftgæðum og er orkusparandi.


Byggingaraðili er MótX ehf., fyrirtæki með mikla reynslu af nýbyggingum og er meðal framsæknustu fyrirtækja í byggingageiranum. Félagið er traust og leggur metnað í vandaða uppbyggingu.

Góð staðsetning í Urriðaholti þar sem stutt er í skóla, leikkóla, sundlaug, Heiðmörk,  fallega náttúru og gönguleiðir. Einnig stutt í helstu samgönguæðar höfuðborgarsvæðisins og matvöruverslanir.
Í jaðri hverfisins er einn Oddur, einn glæsilegasta golfvöllur landsins.
Falleg og vel skipulögð íbúð með útsýni, vönduðum innréttingum, sérbílastæði í lokaðri bílageymslu og góðri staðsetningu í eftirsóttu hverfi í Garðabæ.

Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Ás fasteignasala

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Naustavör 7
Hleðslustöð
Skoða eignina Naustavör 7
Naustavör 7
200 Kópavogur
90,2 m2
Fjölbýlishús
211
886 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Ástún 14
Skoða eignina Ástún 14
Ástún 14
200 Kópavogur
93,1 m2
Fjölbýlishús
413
837 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Kársnesbraut 108 (206)
Kársnesbraut 108 (206)
200 Kópavogur
85,9 m2
Fjölbýlishús
312
732 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Álftröð 7
Bílastæði
Skoða eignina Álftröð 7
Álftröð 7
200 Kópavogur
108 m2
Fjölbýlishús
413
944 þ.kr./m2
101.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin