Í einkasölu - Veitinga- og hótel rekstur Kaffi Duus við Smábátahöfnina í Keflavík, Reykjanesbæ.
Sala á veitingar- og hótelrekstri Kaffi DUUS.
Leigusamningur verður gerður við rekstraraðila.
Um er að ræða rekstur, tækjakost og allt innbú Hótel Duus og Kaffi Duus. Húsið var upphaflega byggt 1997 en hótel rýmið var tekið í notkun 2019.
Spennandi rekstur í ört vaxandi fjölgun ferðamanna, frábært tækifæri til uppbyggingar í aðeins 5 mínútna fjarðlægð frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Veitingarreksturinn tekur 100 manns í sæti.
Tveir veitingarsalir, miðjusalur er með gólfhita og þar eru básar sem rúmar 22 manns í sæti.
Gluggasalurinn er með útsýni yfir smábátahöfnina og rúmar 78 manns í sæti.
Stór afgreiðslubar með innréttingu og tveimur afgreiðslukössum.
Morgunverðaraðstaða sem tengir veitingarsalinn og hótelið saman.
Tvö eldhús eru ásamt stórum frystir, kælir og lageraðstöðu. Epoxy er á gólfum.
Starfsmannaaðstaða er innaf eldhúsi, sér starfsmanna salerni innaf aðstöðu.
Skrifstofa er á annari hæð yfir eldhús og lagerrými. Gott geymslupláss er á lofti.
Tvö salerni eru innan veitingarhússins þegar gengið er inn á Kaffi Duus.
Gólfefni eru flísar á anddyri, vínilparket á veitingarsölum og epoxy á eldhús og lagerrýmum.
Hótelið er á þremur hæðum með
14 herbergi sem öll eru með sérbaðherbergjum, ellefu herbergi eru með svölum en þrjú eru án.
Sérinngangur er inná Hótel Duus og er gengið inní móttöku hótelsins.
Á rishæð eru sjö herbergi og eru fjögur herbergi með svalir og útsýni yfir smábátahöfnina.
Á miðhæð er móttaka og setustofa. Fjögur herbergi með svalir og útsýni yfir smábátahöfnina.
Á 1.hæð/kjallara eru þrjú herbergi með svölum. Þvottahús hótelsins og geymsla. Inntaksrými er í kjallara.
Lyfta er fyrir miðju hússins á milli miðhæðar og rishæðar.
Gólfefni eru flísar og teppi á móttöku og göngum. Vínilparket er á herbergjum en epoxy á böðum.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu M2 fasteignasölu í síma 421-8787 eða fermetri@fermetri.isForsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Veist þú um einhvern sem þarf aðstoð við að selja eignina sína, gerðu tvennt. Segðu okkur frá þeim og þeim frá okkur !
Erum með mikið af fólki á skrá sem leitar eftir skiptum á bæði stærri og minni eign.
M2 Fasteignasala & Leigumiðlun sími 421-8787
M2 fasteignasala á Facebook
M2 fasteignasala á Instagram
www.fermetri.is