Fasteignasalan TORG kynnir til sölu Eiríksgötu 37, Þorfinnsgötu 14 og 16. Um er að ræða húsnæði á þremur fastanúmerum skráðar sem sjúkrahús og eru staðsettar á viðskipta- og þjónustulóð. Húsnæðið hefur verið kennt við gamla fæðingarheimilið en eignirnar hafa verið sameinaðar í eina eign, reknar af Landspítala og innréttaðar sem sjúkrahús. Nánari uppl. veita Þorlákur fasteignasali GSM 820-2399, netfang thorlakur@fstorg.is og/eða Sigurður fasteignasali GSM: 898-6106 netfang sigurdur@fstorg.isEign sem býður upp á spennandi möguleika fyrir fjárfesta eða verktaka á góðum stað í Reykjavík.
Birt flatarmál eigna skv. HMS eru:
Eiríksgata 37, fastanúmer 200-8916, mhl. 030101 er 447 fm.
Þorfinnsgata 14, fastanúmer 200-8914, mhl. 010101 er 450 fm.
Þorfinnsgata 16, fastanúmer 200-8915, mhl. 020101 er 443 fm.Hver eign hefur sinn inngang og líklega er möguleiki á að loka á milli aftur ef það þykir nauðsynlegt. Rómgóð og snyrtileg lóð er í kringum húsið. Húsið er þrjár hæðir ásamt kjallara. Rishæðin er að hluta til undir súð. Hæðirnar eru með kerfisloftum. Gengið er út á vestursvalir af hæðunum með útsýni að Hallgrímskirkju. Einnig eru minni svalir sem snúa í suður á 3ju hæð. Rishæðin er mikið undir súð austan megin og komið að viðhaldi á þakgluggum. Í kjallara eru geymslur, lagerrými, tæknirými o.fl. Gólfin eru lökkuð. Innangengt er á milli kjallara frá Þorfinnsgötu 14-16 og útgangar í port í báðum hlutum. Komið er að allsherjar viðhaldið á húsnæðinu öllu.
*Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum og því sem hér að ofan er lýst. Því leggur seljandi ríka áherslu á að sérstakrar árvekni sé gætt við skoðun og úttekt á eigninni.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Þorláki Ómari Einarssyni fasteignasala GSM 820-2399, netfang thorlakur@fstorg.is og/eða Sigurði Gunnlaugssyni fasteignasala GSM: 898-6106 netfang sigurdur@fstorg.isForsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.