Skráð 16. jan. 2023
Deila eign
Deila

Núpahraun 12

Nýbygging • RaðhúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
139.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
66.700.000 kr.
Fermetraverð
478.479 kr./m2
Fasteignamat
4.710.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 2022
Þvottahús
Garður
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
F2510751
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðar í húsi
1
Hæðar í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
skv. byggst 5 í íst-51
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýjar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Svalir
Engar svalir
Lóð
100
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
3 - Burðarvirki fullreist
Matsstig
3 - Risin bygging

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir:  Núpahraun 12, Þorlákshöfn, nýtt, glæsilegt, endaraðhús með 3 svefnherbergjum og bílskúr.  Húsið er einstaklega skemmtilega skipulagt og snýr stofan i vestur/norður, þannig að sólar nýtur frá ca hádegi og fram á kvöld! 
HÚSIÐ ER LAUST TIL AFHENDINGAR !
Húsið er nær viðhaldslaust og er klætt að utan með ljósu og dökkgráu bárustáli og dökkgráum gluggum og hurðum og dökkgráu þakstáli !

 
* Bóka má skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com *

Húsið skiptist svo:
* Anddyri.
* 3 stór svefnherbergi.
* Fallega stofu og eldhús í opnu rými.  Utangengt er úr stofunni í garðinn.  
* Baðherbergi.
* Þvottahús, þaðan sem utangengt er í garðinn.
* Bílskúr.


Húsið afhendist tilbúið til málunar (á byggingarstigi 5 skv. íst-51, gamli staðillinn) samkvæmt neðangreindri lýsingu:

Loft eru upp tekinn.  Eftir er að klæða loftaklæðningu en raflagnir og lagnagrind komin upp.
Á þaki er Ranilla bárað þakstál dökk grátt.
Álrennur eru utaná þakkant
Gluggar og hurðir:  Gluggar eru ál-tré gluggar frá viðurkenndum aðila.  Gluggar eru hvítir RAL9010 að innan en gráir 6 að utan.
Hitakerfi: Búið er að leggja gólfhitalagnir og tengja saman við tengigrind.  Stýringar og annar búnaður gólfhita fylgir ekki.
Raflagnir: Búið er að leggja út ídráttarrör og dósir og draga fyrir vinnurafmagni.  Tafla er ófrágengin.
Gólf: Gólf eru steypt og afhendast flotdregin.
Lóð : Lóð er grófjöfnuð með mulningi í plani. Sorptunnuskýli á lóð eru komin. 
Gert er ráð fyrir rafhleðslu fyrir rafbíla.  Hleðslustöð fylgir ekki.
Skjólveggir og verandir eru ekki innifaldar en mælst er til að samræmi sé gætt á milli íbúða í efnisvali og útfærslu til að gæta að heildarútliti húsins.

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
Apótekarann.
Bakaríið Kaffiskjóðan (facebook: kaffiskjóðan)
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Kr.-verslun með yfir 2.000 helstu vöruliði á Krónuverði 

Veitingastaðina:
Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Caffe Bristól
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.


Hér er mjög góð heilsugæsla.

Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn

Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.

Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.

Afþreying er hér af ýmsum toga:

hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is


 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2022
29.4 m2
Mynd af Guðbjörg Heimisdóttir
Guðbjörg Heimisdóttir
Löggiltur fasteigna-fyrirtækja- og skipasali

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vetrarbraut 9
Bílskúr
Skoða eignina Vetrarbraut 9
Vetrarbraut 9
815 Þorlákshöfn
131.8 m2
Parhús
312
530 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Ísleifsbúð 24
Skoða eignina Ísleifsbúð 24
Ísleifsbúð 24
815 Þorlákshöfn
120.1 m2
Raðhús
413
546 þ.kr./m2
65.600.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 11
Bílskúr
Skoða eignina Vetrarbraut 11
Vetrarbraut 11
815 Þorlákshöfn
131.8 m2
Parhús
312
530 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 11
Skoða eignina Vetrarbraut 11
Vetrarbraut 11
815 Þorlákshöfn
132.3 m2
Parhús
312
528 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache