Glæsileg, björt og afar vel skipulögð 4 herbergja þakíbúð (Penthouse) á efstu hæð í nýlegu og viðhaldslitlu lyftuhúsi í Smárahverfi Kópavogs. Eina íbúðin á hæðinni með þaksvalir á þrjá vegu með miklu útsýni.
** 3 svefnherbergi
** Mikil lofthæð - 3,7m í stofu, 3,3m í öðrum rýmum
** Eina íbúðin á hæðinni
** 51m2 þaksvalir
** Bílastæði í bílageymslu
** Frábær staðsetningNánari upplýsingar veita:
Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr
660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð skv. HMS er 130,4m
2, þar af geymsla 10,2m
2.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Nánari lýsing:
Forstofa er með góðum fataskápum. Parket á gólfi
Baðherbergi I er með hvítri innréttingu, handlaug og speglaskáp, "walk-in" sturtu, handklæðaofni, upphengt salerni og opnanlegan glugga. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Eldhús með fallegri hvítri innréttingu, ljósri borðplötu og eyju, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél og innbyggðum vínkæli. Öll eldhústæki eru frá Gorenje. Parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er björt og opin með útgengi út á 51m2 þaksvalir á þrjá vegu með miklu útsýni. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I er með fataskáp. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með góðum fataskápum. Parket á gólfi.
Svefnherbergi III er inn af stofu með parket á gólfi.
Baðherbergi II er með hvítri innréttingu, handlaug og speglaskáp ásamt háum hvítum skáp, "walk-in" sturtu, handklæðaofni og upphengt salerni. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Þvottahús er innan íbúðar með lítilli innréttingu með vaski. Flísar á gólfi.
Geymsla í sameign, 10,2m
2.
Bílastæði í bílageymslu merkt B02 sem er vel staðsett við innganginn í bílageymsluna. Hleðslustöð er við stæðið og fylgir með.
Í íbúðinni eru rafmagnsgardínur að gerðinni Luxaflex Powerview frá Zenus og snjallsímastýrður myndavélasími ásamt aðgangsstýringu í sameign.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Sunnusmári 19, íbúð merkt 0601, er falleg og rúmgóð eign á frábærum stað. Stutt er í þjónustu verslana, Smáralind, skóla, íþróttaaðstöðu, heilsugæslu og matvöruverslun.
Sjón er sögu ríkari.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.