Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 og Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali, sími 7751515, netfang jason@betristofan.is kynnir: Réttarholtsvegur 39 sem er mikið endurnýjað raðhús í 108 Reykjavík. Eignin skiptist í efri hæð með 3 svefnherbergjum og baðherbergi, aðalhæð sem er anddyri, eldhús, stofur og útgengi út í garð, neðsta hæðin sem er kjallari skiptist í baðherbergi, svefnherbergi og opið rými sem getur nýtst sem svefnherbergi. Sérgarður, sem er lokaður bæði fyrir framan og aftan hús. Vinsælt hverfi.
Nánari lýsing: Miðhæð. Forstofa: flísalögð með hvítum 60x60 Marazzi flísum frá Harðviðarvali. Fataskápur. Eldhús: Harðparket á gólfi miðhæðar. Eldhúsinnrétting frá IKEA síðan 2018. Tæki frá AEG. Stofa og borðstofa: Eru til suðurs og útgengt í aflokaðan garð úr stofu. Garður: Garður er með stiga niður. Sólpallur þekur suðurgarð. Á lóð er geymsluskúr.
Nánari lýsing: Efri hæð: Parket er á allri hæðinni nema baðherbergi. Þakgluggar eru bæði í stigagangi og baðherbergi. Upprunalegur stigi er á milli hæða sem var parketlagður 2019. Aukin lofthæð. Herbergi 1: hjónaherbergi snýr til suðurs með tveimur gluggum sem báðir eru björgunarop. Fataskápur. Herbergið er um 14 m2. Herbergi 2: barnaherbergi snýr til norðurs með glugga sem er björgunarop. Parketlagt með fatahengi. Herbergið er um 8 m2. Herbergi 3: barnaherbergi snýr til norðurs með glugga sem er björgunarop. Parketlagt með fatahengi. Herbergið er um 6 m2. Baðherbergi: Flísar, 60x60 cm Marazzi flísar frá Harðviðarvali á gólfi og veggjum. Innrétting, salerni, sturta með gólfniðurfalli. Þakgluggi með viftu. Gólfhiti.
Nánari lýsing: Kjallari: Stigi niður í kjallara var teppalagður árið 2020 með stigateppi frá Harðviðarvali. Sérhannaður spegill. Í kjallara er alrými með svefnaðstöðu. Baðherbergi/þvottaherbergi: Gólfhiti. Flísalagt gólf og hluti veggja, innrétting, salerni, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Herbergi 4: Svefnherbergi, 22 m2, er í norðurhlið kjallara, Parketlagt, með gipsklæddu lofti og löglegri flóttaleið um gluggabrunn til norðurs. Geymsla er undir stiga niður í kjallara.
Viðhald og viðgerðir: 2023: Fataskápar í hjónaherbergi. 2022: Sérafnotaflötur í norðurgarði steyptur með litaðri steypu með innsteyptum snjóbræðslulögnum.
2021: Útveggir á norður- og suðurhlið slípaðir upp, filtaðir og málaðir.
2020: Kjallari parketlagður. 2020: Gluggar frá HCTC á aðalhæð og efri hæð. Gluggar á suðurhlið með sólarvarnargleri.
2019: Baðherbergi á efri hæð endurnýjað, flísar frá Harðviðarval, innréttingar frá IKEA, hreinlætistæki frá Ísleifi Jónssyni. 2019: Nýjar yfirfelldar innihurðir frá Harðviðarvali í öll rými. 2019: 12 m2 geymsluskúr í suðurgarði og sólpallur stækkaður.
2018: Ný eldhúsinnrétting frá IKEA, tæki frá AEG. 2017: Efri hæð parketlögð með Quick-Step harðparketi frá Harðviðarvali.
2005: Kjallari stækkaður og útbúið herbergi í norðurhluta öll kjallaraplata brotin í burtu og steypt ný með innsteyptum gólfhitalögnum. Baðherbergi í kjallara endurnýjað. Allt frárennsli endurnýjað og komið fyrir vegghengdu salerni á baðherbergi á efri hæð. 2001: Heimtaugalagnir og frárennsli í jörðu endurnýjað í allri lengjunni. Ritari húsfélagsins er með möppu með þessum upplýsingum.
Annað: Eigninni fylgja tvö sérmerkt bílastæði. Um er að ræða frábærlega vel staðsetta eign í barnvænu og góðu hverfi. Stutt er í alla helstu þjónustu, matvöruverslanir, apótek, skóla, leikskóla ofl.
Stutt í skóla, íþrottir, samgöngur, verslanir og þjónustu.
Nánari upplýsingar:
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 - löggiltur fasteignasali, netfang: jason@betristofan.is