ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:Rjúpufell 46, 111 Reykjavík er falleg og mikið endurnýjuð 4ra herbergja íbúð á fjórðu hæð ásamt endabílskúr.
Eignin er skráð 132,5 m² samkvæmt fasteignaskrá HMS. Þar af er íbúðin 105,9 m², sérgeymsla á jarðhæð 4,5 m² og bílskúr 22,1 m². Íbúðin skiptist í forstofuhol, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum, meðal annars baðherbergi, eldhúsinnrétting og gólfefni. Þak bílskúralengjunnar var endurnýjað 2022 og þak hússins endurnýjað árið 2024.
Nánari lýsing:Hol: Komið er inn í rúmgott hol með fataskáp. Úr holinu er gengið inn í öll helstu rými íbúðarinnar.
Eldhús: Á hægri hönd er bjart eldhús með fallegri innréttingu og eyju. Í innréttingunni er innbyggð uppþvottavél, bakaraofn og keramikhelluborð, og gert er ráð fyrir innbyggðum ísskáp. (Uppþvottavel og bakarofn eru nýleg)
Þvottahús: Inn af eldhúsi er flísalagt þvottahús með vinnuborði.
Stofa: Gengið er inn í stofu bæði úr holi og eldhúsi. Úr stofu er gengið út á yfirbyggðar svalir með opnanlegum gluggafögum, sem nýtast vel allt árið.
Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi, fataskápur í einu þeirra.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með innréttingu, sturtu og gólfhita. Ný blöndunartæki.
Gólfefni: Parket er á gólfum nema í eldhúsi, þvottahúsi og á baðherbergi, en þar eru flísar.
Bílskúr: Íbúðinni fylgir 22,1 m² endabílskúr í bílskúrslengju fyrir framan húsið. Í honum er rafmagn og hiti. Bílskúrinn hefur verið notaður sem ljósmynda-studio síðustu ár. Möguleiki er á að útbúa aukið geymslupláss í þakrými bílskúrsins.
Geymsla: Sérgeymsla á jarðhæð.
Sameign: Í sameign er sameigninleg hjóla- og vagnageymsla sem og sérgeymsla íbúðar.
Samkvæmt upplýsingum frá seljendum var þak húseignarinnar endurnýjað að hluta (járn, pappi og timbur eftir þörfum) sumarið 2024 og árið 2022 var þak og þakkantur bílskúralengjunnar endurnýjaður. Þá hefur rafmagnstafla fyrir stigagang einnig verið endurnýjuð.
Í nærumhverfi er Leikskólinn Ösp, Fellaskóli og íþróttasvæði Leiknis og skammt frá eru fallegar gönguleiðir í Víðidal og meðfram Elliðaá.Nánari upplýsingar veitir/veita:
Ásgeir Þór Ásgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 772-0102, tölvupóstur asgeir@allt.is.
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524, tölvupóstur sigurjon@allt.is.Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.