Fasteignaleitin
Skráð 2. sept. 2026

Bárugata 21

Nýbygging • EinbýlishúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
214.3 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
158.900.000 kr.
Fermetraverð
741.484 kr./m2
Fasteignamat
105.900.000 kr.
Brunabótamat
121.100.000 kr.
Mynd af Hólmar Björn Sigþórsson
Hólmar Björn Sigþórsson
Löggiltur fasteignasali
8933276www.helgafellfasteignasala.isEignalisti
Byggt 2024
Garður
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2528242
Landnúmer
235924
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýjar.
Raflagnir
Nýjar.
Frárennslislagnir
Nýjar.
Gluggar / Gler
Nýir.
Þak
Nýtt.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðuraustur og suðvestur sólpallar.
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita / Ný.
Inngangur
Sérinngangur
Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölum Bárugötu 21, 815 Þorlákshöfn:

Um er að ræða glæsilegt og einstaklega smekklega innréttað 5 herbergja einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Birt stærð eignar samkvæmt fasteignaskrá er 214,3 fermetrar, þ.a. er íbúðarhluti 172,1 fm. og bílskúr 42,2 fm. Umhverfis húsið er fallegur garður með  tveimur sólpöllum, alls ca. 210 fm. og heitum potti. Húsið er staðsett í jaðri byggðar í Vesturbyggð sem er glænýtt hverfi í vestur jaðri Þorlákshafnar. 

Eignin skiptist í anddyri, fjögur svefnherbergi, stofa / borðstofa og eldhús í opnu alrými, sjónvarpshol / gangur, baðherbergi, þvottahús, bílskúr og geymsla / herbergi. 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Lýsing eignar:
Anddyri: Komið er inn í stórt anddyri með fallegum fataskápum, flísar á gólfi. 
Stofa / borðstofa: Í fallegu alrými, björt og rúmgóð, innfelldar hillur og lýsing, útgengi út á stóran suðaustur sólpall og suðvestur sólpall, parket á gólfi. Gólfsíðir gluggar gefa rýminu mikla birtu og fallegt útsýni. 
Eldhús: Í fallegu alrými, glæsileg innrétting með miklu skápaplássi og 3,2 metra eyja með skúffum og skápum með Taj Mahal borðplötum (quartzite steinn)  á borðum og milli skápa, undirlímdur vaskur, innfelldur ísskápur og frystiskápur frá Samsung, innfelld uppþvottavél frá Ikea, tveir bakarofnar (bakaraofn + combi ofn), spanhelluborð á eyju frá Witt, parket á gólfi. 
Sjónvarpshol / gangur: Úr forstofu er gengið inn í rúmgott sjónvarpshol / gang, vegghengdur sjónvarpsskápur fylgir með, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Stórt hjónaherbergi með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott svefnherbergi með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Gott svefnherbergi með góðum fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi 4: Gott svefnherbergi með góðum fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi: Falleg innrétting með Taj Mahal borðplötum (quartzite steinn), undirlímdur vaskur, speglaskápar, frístandandi baðker og walk-in sturta, innfelld blöndunartæki, upphengt salerni, handklæðaofn, útgengi út á suðvestur sólpall, flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús: Rúmgott þvottahús með góðri innréttingu og skápum, vinnuborð með vask, flísar á vegg við innréttingu, innangengt í bílskúr og hurð út í innkeyrslu, flísar á gólfi. 
Bílskúr / geymsla: Stærð 42,2 fm, rafdrifin bílskúrshurðaopnari, heitt og kalt vatn, flísar á gólfi. Inn af bílskúr er geymsla með glugga sem notuð er sem herbergi, fataskápur, parket á gólfi.

Húsið: Húsið er byggt 2024. Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með hvítri stallaðri álklæðningu og með hitameðhöndlaðri furu í innfellingum. Gólfsíðir gluggar eru í húsinu sem gefa húsinu aukna birtu. Hljóðdúkur er í loftum í öllum rýmum að undanskildu þvottahúsi og bílskúr. Innfelld lýsing er í flestum rýmum og snjalllýsing á loft og veggljósum. Gólfhiti er í húsinu og stafrænar hitastýringar í hverju rými. Allar innréttingar eru frá Fríform (litur Cashmere). Taj Mahal borðplötur frá Granítsmiðjunni. Chevron viðarparket er á gólfum. Flísar frá Ebson. Baðker og blöndunartæki eru frá Lusso-stone í Bretlandi. 

Lóð: Húsið er staðsett á 972 fm jaðarlóð og ekki er fyrirhugað að byggð sunnan við húsið. Framan við húsið og hluta norður og austurhliðar er steypt innkeyrsla og stétt, hiti er í stétt að hluta sem er ótengd, fjögur ruslatunnuskýli með loki.  Á austur og suðurhlið er ca. 90 fm. sólpallur undir þaki að hluta og á suður og vesturhlið er ca. 120 fm. sólpallur með heitum potti. Aðrir hlutar lóðar eru þökulagðir. 

Hér er um að ræða einstaklega glæsilegt og vel staðsett fjölskylduhús á góðum - Stutt er í grunn- og leikskóla, sundlaug og íþróttahús, verslanir, alla helstu þjónustu og náttúruna - Eign sem vert er að skoða. 

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is. 

Þorlákshöfn:
Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn og í Vesturbyggð nýju hverfi er nýr leikskóli (Hraunheimar). Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.  
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/07/202410.050.000 kr.78.000.000 kr.214.3 m2363.975 kr.
19/07/202410.050.000 kr.78.000.000 kr.214.3 m2363.975 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2024
42.2 m2
Fasteignanúmer
2528242
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
16.850.000 kr.

Myndir (53)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Heinaberg 23, Góð staðsetning
Bílskúr
Á einni hæð
Heinaberg 23, Góð staðsetning
815 Þorlákshöfn
224.2 m2
Einbýlishús
614
423 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Heinaberg 23, Góð staðsetning
Heinaberg 23, Góð staðsetning
815 Þorlákshöfn
224.2 m2
Einbýlishús
614
423 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Kléberg 15, afar góð staðsetning
Bílskúr
Á einni hæð
Kléberg 15, afar góð staðsetning
815 Þorlákshöfn
192.9 m2
Einbýlishús
614
466 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Kléberg 15, afar góð staðsetning
Kléberg 15, afar góð staðsetning
815 Þorlákshöfn
192.9 m2
Einbýlishús
614
466 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin