Miklaborg kynnir: Glæsileg sérhæð ásamt risi á Háteigsvegi 30, teiknað út frá frumhugmynd Einars Sveinssonar arkitekts. Þar nýtur sín til fulls ríkulegt flæði dagsbirtu, stórar vistarverur og gott skipulag á herbergjum. Hér fer saman klassískur sjarmi og einstakt rými ásamt bílskúr á mjög eftirsóttum stað . Eignin hefur verið mikið endurnýjuð m.a. eldhús, baðherbergi, gólfefni, ofnar í stofu og eldhúsi og einnig var þak ásamt rennum og niðurföllum endurnýjað árið 2018, svo eitthvað sé nefnt. Eign sem tekur vel utan um fjölskylduna með rúmgóðum svefnherbergjum og stóru opnu eldhúsi og miklum stofum. Háteigsvegur hefur þróast á undanförnum árum í að vera róleg og umferðarlítil gata. Stutt er í skóla, verslanir, miðbæinn og ekki má gleyma Kjarvalsstaði á Klambratúni þar sem notalegt er að njóta listviðburða eða útiveru á fallegu svæði sem líkist stórum görðum erlendis, fullt af mannlífi, viðburðum og notalegum stundum.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Efri hæð er með fallegu eikarparket á gólfi utan blautrýma sem eru flísalögð.
Anddyri: Gengið er upp útitröppur að anddyri. Fallegar flísar á gólfum, fatahengi og gott veggjapláss fyrir t.d. skóskáp eða hirslur. Frá anddyri er aðgangur að sameign kjallara.
Stigi að efri hæð: Höfugur með miklum gluggum er hleypa dagsbirtu inn. Nýlegt teppi á tröppum og lýsing meðfram, upprunalegt handrið.
Eldhús: Vel skipulagt með fallegri hvítri innréttingu sem býður upp á mikið skápapláss. Corian borðplata með innbyggðum vaski og stæði fyrir uppþvottavél. Innfellt hólf fyrir breiðan ísskáp. Góð lýsing og gluggi er vísar í norður yfir Háteigsveginn.
Þvottahús: Innangengt frá eldhúsi. Gott skápapláss og flísar á gólfum.
Hol: Breitt hol sem vísar í átt að stofum
Herbergi: Til hliðar við hol og er nýtt í dag sem rými fyrir yfirhafnir, með stórum fataskáp.
Stofur: Í raun má segja að stofurnar séu þrjár, stór upprunaleg setstofa með útsýnisglugga sem vísar yfir garðinn í suður og vesturglugga þaðan sem Hallgrímskirkja blasir við, stór borðstofa með glugga í suður og austur. Við enda hols er rými sem teiknað er sem herbergi en er nýtt í dag sem sjónvarpsherbergi. Gott birtuflæði frá stórum gluggum einkennir stofurnar sem hýsa auðveldlega stór samkvæmi.
Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi eru á hæðinni sem eru bæði mjög rúmgóð og með fataskápum.
Baðherbergi: Endurnýjað að öllu leyti árið 2025 en þá var hiti settur í gólf og það flotað. Vatnslagnir og blöndunartæki endurnýjaðar (Demm og KWC) og Mora handlaug. Skápainnrétting frá HTH og flísar á gólfi og veggjum frá Birgisson.
Ris: Nýlegt teppi á tröppum rishæðar. Stórt svefnherbergi og önnur rými sem hægt væri að útbúa sem svefnherbergi. Baðherbergi með upphengdri salernisskál og handklæðaofn.
Bílskúr: Í ágætu ásigkomulagi að utan en leki er til staðar sem ekki hefur verð komð í veg fyrir og óvíst hvaðan hann kemur. Fjarstýrður hurðaopnari.
Tvær sérgeymslur eru í kjallara sameignar og einnig er þar hitageymsla sem hefur nýst sem sameiginleg hjólageymsla.
Stór og glæsilegur garður er á bak við hús enda heildarlóðin 870 fm að stærð. Mikil trjárækt og garður sem hefur verið nostrað við.
Tignarleg eign á góðum og fjölskylduvænum stað með afar góðu skipulagi og ýmsum möguleikum t.d. með fjölgun svefnherbergja ef þarf.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 07/02/2011 | 44.150.000 kr. | 59.000.000 kr. | 264.2 m2 | 223.315 kr. | Já |
| 16/07/2008 | 41.560.000 kr. | 64.000.000 kr. | 264.2 m2 | 242.240 kr. | Nei |
| 03/12/2007 | 37.250.000 kr. | 67.000.000 kr. | 264.2 m2 | 253.595 kr. | Nei |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
105 | 262,2 | 225 | ||
105 | 92,3 | 99 | ||
101 | 94,5 | 104,9 | ||
101 | 100,1 | 92 | ||
101 | 38,2 | 53 | ||
102 | 77 | 79,9 |