Fasteignaleitin
Skráð 30. apríl 2026

Veghús 17

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
171.3 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
98.900.000 kr.
Fermetraverð
577.350 kr./m2
Fasteignamat
98.000.000 kr.
Brunabótamat
79.430.000 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2041016
Landnúmer
109737
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
endurnýjað að hluta - * sjá lýsingu
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta - * sjá lýsingu
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta - * sjá lýsingu
Þak
yfirfarið og endurnýjað að hluta * sjá lýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita og ofnakerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Gallar
Sprunga í flís á baðherbergi neðri hæðar. Vantar hluta af parketi á gólfi hjónaherbergis, á efri hæð. Það er lítið brot upp úr svalargólfi sem þarf að lagfæra.
Margrét Rós lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu stóra og rúmgóða 6 herbergja endaíbúð á tveimur hæðum ásamt innbyggðum bílskúr við Veghús 17 í Reykjavík. Um er að ræða bjarta og vel skipulagða íbúð á tveimur hæðum með fimm svefnherbergjum. Á neðri hæð er forstofa, hol, rúmgott eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, sér þvottahús og afar gott alrými sem rúmar vel bæði stofu og borðstofu með útgengi á svalir til suðvesturs. Á efri hæð eru svo þrjú rúmgóð svefnherbergi og salerni, þar sem ráð er gert fyrir sturtu eða baði. Tilvalin eign fyrir stækkandi fjölskyldu og er staðsetningin afar góð með stutt í stofnbrautir ásamt því að öll helsta þjónusta er í nágrenni, eins og leikskóla, skóla, íþróttamiðstöð, sundlaug, matvörubúðir, líkamsrækt og margt fleira. Góðir göngu- og hjólastígar í allar áttir um hverfið og náttúruna í kring. Gott aðgengi er að útivistarsvæðum og samgöngum. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali, í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR ***

Birt heildarstærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 171,3 m², þar af er íbúð 150,8 m² og bílskúr 20,5 m².

Nánari lýsing og skipting eignarhluta:
Neðri hæð

Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Hol er með eikarparketi á gólfi.
Eldhús er með góðri U-laga innréttingu, skápa og skúffuplássi, borðkrók og flísum á gólfi.
Stofan og borðstofan er björt og rúmgóð með eikarparketi á gólfi og útgengi á suðvestursvalir.
Tvö svefnherbergi sem eru bæði rúmgóð með harðparketi á gólfi og skápur í öðru þeirra.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með baðkari, upphengdu salerni, innréttingu með skápaplássi og opnanlegum glugga.
Þvottahús/geymsla með borðplötu, skolvaski, hillum og flísum á gólfi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Efri hæð
Viðarstigi er upp á efri hæð.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum, ásamt sér salerni, þar sem gert er ráð fyrir sturtu eða baði. Stór gluggi með fallegu útsýni yfir stórum hluta höfuðborgarsvæðisins, m.a Hallgrímskirkju.
Tvö rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfi og opnanlegum þakgluggum, þ.a. fataskápur í öðru herberginu.
Salerni er inn af hjónaherbergi og er flísalagt með upphengdu salerni, innréttingu og opnanlegum glugga. Möguleiki á að setja upp sturtu eða baðkar.

Sameign og bílskúr ofl.
Bílskúr er skráður 20,5 m² að stærð og er innfelldur í húsið.
Stigagangur er teppalagður.
Hjóla- og dekkjageymsla í sameign.

Framkvæmdir á vegum húsfélags undanfarin ár
Mikil viðhaldsvinna hefur farið fram á árum (2020–2022):
- Múrverk hússins yfirfarið og lagfært í heild.
- Svalir og frárennslismál endurbætt.
- Tréverk yfirfarið og endurnýjað þar sem þurfti.
- Gluggar og listar endurnýjaðir að hluta.
- Þak yfirfarið, hreinsað og málað.
- Þakrennur og frárennslisrör endurnýjuð.
- Snjógildrur settar upp.
- Húsið allt málað (múr, tréverk og þak).

Nýlegar framkvæmdir (2025):
- Skipt um þakglugga þar sem þörf var á vegna leka.
- Framkvæmdum lokið og þær að fullu greiddar.

Endurbætur innan íbúðar undanfarin ár að sögn seljanda (2023-2024): 
- Ofnar yfirfarnir og endurnýjaðir að hluta, af fyrri eiganda og skv. eldri sölugögnum. 
- Skipt um blöndunartæki á baðherbergi neðri hæðar (2024).
- Skipt um rofa og tengla að hluta á baðherbergi neðri hæðar (2024).

FÁÐU FRÍTT VERÐMAT Á ÞÍNA EIGN HÉR

Grafarvogurinn er frábært svæði með tilliti til verslana og allrar almennrar þjónustu í nágrenninu og örstutt er í flotta íþróttaaðstöðu Fjölnis, Sundlaug Grafarvogs ásamt því að leikskólinn Brekkuborg er í um 200 m fjarlægð og Húsaskóli, sem er grunnskóli hverfisins, er í um 600 metra fjarlægð og svo er Borgarholtsskóli í hverfinu. Góðar almenningssamgöngur og bensínstöð N1 í næsta nágrenni. Svo er einnig góð læknisþjónusta og lyfjaverslun, matvöruverslanir, fiskbúð, ísbúð og margs konar þjónustu og fjölda veitingastaða í Spönginni og ýmis þjónusta í verslunarkjarnanum í Hverafold. Stutt í Egilshöllina með alla þá afþreyingu sem þar er að finna, eins og bíó og keilu, skautasvell og líkamsrækt, hárgreiðslustofu og veitingastað og alla þá íþróttaaðstöðu sem þar er boðið upp á. Þar fyrir utan er örstutt í golfvöllinn að Korpúlfsstöðum. Góðir göngu- og hjólastigar liggja um og frá hverfinu til allra átta.

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 773-3532 / adalsteinn@fstorg.is

KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
18/04/202486.850.000 kr.93.000.000 kr.171.3 m2542.907 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1990
20.5 m2
Fasteignanúmer
2041016
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
05
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.280.000 kr.

Myndir (43)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Áshamar 7
Skoða eignina Áshamar 7
Áshamar 7
221 Hafnarfjörður
138.7 m2
Fjölbýlishús
413
706 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Skoða eignina Tunguvegur 1
Opið hús:04. maí kl 17:00-17:30
Rúmgóð stofa
Skoða eignina Tunguvegur 1
Tunguvegur 1
108 Reykjavík
87 m2
Fjölbýlishús
412
801 þ.kr./m2
69.700.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 5
Opið hús:03. maí kl 13:30-14:00
Skoða eignina Áshamar 5
Áshamar 5
221 Hafnarfjörður
138.9 m2
Fjölbýlishús
314
730 þ.kr./m2
101.400.000 kr.
Skoða eignina Kerhraun B 114
Skoða eignina Kerhraun B 114
Kerhraun B 114
805 Selfoss
134.5 m2
Sumarhús
413
743 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin