Fasteignaleitin
Skráð 6. nóv. 2026

Brautarland 19

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
130.6 m2
5 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
147.800.000 kr.
Fermetraverð
1.131.700 kr./m2
Fasteignamat
127.500.000 kr.
Brunabótamat
85.000.000 kr.
Mynd af Kristján Gíslason
Kristján Gíslason
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 1968
Garður
Pallur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2037148
Landnúmer
108768
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjaðar að hluta
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Skipt um járn og pappa 2007
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gimli fasteignasala og Kristján Gíslason kynna:  Brautarland 19, sem er glæsilegt og mikið endurnýjað 130,6 fm enda-raðhús á einni hæð, á frábærum stað í Fossvoginum. Húsið stendur innst í botnlanga við opið svæði. Innra skipulag er mjög fallegt en úr eldhúsi er opið inn í borðstofu og stofu með mikilli lofthæð. Í framhaldi af stofunni er gengt út á stóra suðurverönd. Tvö svefnherbergi eru í húsinu í dag og er baðherbergi innaf stærra svefnherberginu en gestasalerni innaf því minna. Sjónvarpsherbergi er útfrá stofu en því væri auðvelt að breyta í svefnherbergi. Innaf eldhúsi er þvottahús og geymsla.
Húsið var mjög mikið endurnýjað á árunum 2005 til 2007 og hefur síðan þá fengið gott viðhald.


Eignin Brautarland 19 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 203-7148, birt stærð 130.6 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Bókið skoðun hjá Kristján Gíslason  í síma 691-4252, eða kristjan@gimli.is

NÁNARI LÝSING:
Aðalinngangur er á norðurhlið hússins. Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fatahengi. Svefnherbergi er á hægri hönd og inn af því er gestasalerni með innréttingu undir vaski, dúk á gólfi og flísum á veggjum . Eldhúsið er einstaklega bjart og opið inn í stofu. Hvít innrétting með svörtum stein á borðum og miklu vinnuplássi. Einnig er steinn ofan á lágum vegg sem skilur að eldhús og borðstofu. Gólfhiti er í eldhúsi og forstofu. Auka inngangur í húsið er í austur enda eldhúss. Inn af eldhúsi er þvottahús með dúk á gólfi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara, gott vinnuborð, hillur á veggjum og stigi upp í geymslu á millilofti. 
Mikil lofthæð er í borðstofu og stofu, sem mynda stórt og fallegt alrými með eldhúsinu, þar sem gólfsíðir gluggar og rennihurð framlengja rýmið út á stóra suður verönd og gróinn garð. Sjónvarpsherbergi er útfrá stofu með gluggum í suður og hurð út á verönd. Auðvelt væri að breyta því í þriðja svefnherbergið.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott og með stórum gluggum sem snúa út í garðinn fyrir sunnan húsið. Innangengt er á baðherbergi með dúk á gólfi og gólfhita og veggir eru físalagðir upp í loft. Þar er stór sturtuklefi, vegghengt salerni, handklæðaofn, stór hvít innrétting með dökkblárri stein plötu og glervaskur. Stór spegill er fyrir ofan innréttinguna. Fataherbergi er við hlið svefnherbergis.
Viðarparket er á öllum gólfum nema á baðherbergi, gestasalerni og þvottahúsi, þar er dúkur og flísar eru á gólfi forstofu.

Garðurinn er vel skipulagður og kallar ekki á mikla vinnu við umhirðu. Fyrir framan húsið, norðanmegin, er breið steypt stétt frá götu að aðal inngangi hússins. Runnar eru meðfram stétt og götu. Þá er steypt bílastæði fyrir tvo bíla fyrir framan húsið. Snjóbræðsla er undir bílastæði og stétt fyrir framan húsið. Að austanverðu er skjólgirðing með hliði á norðurenda. Steypt stétt er innan girðingarinnar, meðfram allri austurhlið hússins. Fyrir sunnan húsið er falleg steypt verönd meðfram öllu húsinu og tré og runnar á lóðarmörkum.

Brautarland 19 er einstök eign á frábærum stað í Fossvogi, Eignin var mikið endurnýjuð á árunum 2005 til 2007 og hefur fengið gott viðhald síðan. Frábært innra skipulag, mikil lofthæð og garðurinn hannaður til útiveru en án þess þó að þurfa mikla umhirðu.

Niðurlag:
Nánari upplýsingar veitir: Kristján Gíslason Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 691-4252, tölvupóstur kristjan@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kuggavogur 15 (201)
Friðjón_vefur (1).jpg
Kuggavogur 15 (201)
104 Reykjavík
129,8 m2
Fjölbýlishús
423
770 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Holtsvegur 39
Efsta hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Holtsvegur 39
Holtsvegur 39
210 Garðabær
111 m2
Fjölbýlishús
413
837 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Skoða eignina Kirkjuvegur 14
Skoða eignina Kirkjuvegur 14
Kirkjuvegur 14
230 Reykjanesbær
114,4 m2
Fjölbýlishús
313
594 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarvegur 54
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Hlíðarvegur 54
Hlíðarvegur 54
260 Reykjanesbær
145,2 m2
Raðhús
514
585 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin