Falleg og vel skipulögð 4ra herbergja 111,3 fm íbúð sem er búið að endurnýja að innan. Sér inngangur. Fallegt útsýni er frá íbúð til sjávar.***Sérinngangur***
***Velskipulögð íbúð með 3 svefnherbergjum***
***Góð staðsetning með fallegu útsýni***
Nánari upplýsingar veitir:
Hörður Sverrisson Lgf. í síma nr 899-5209 eða hordur@palssonfasteignasala.isNánari lýsingForstofa með góðum fataskáp með nýjum skápahurðum og fatagrind.
Þvottaherbergi er innaf forstofu með hillum.
Gangur með góðum geymsluskáp
Þrjú góð svefnherbergi með fataskápum með nýjum skápahurðum.
Baðherbergi er flísalagt og er með baðkari og sturtu í baðkar og góðri innréttingu.
Stofa, með útgengi á rúmgóðar útsýnissvalir í suðvestur. Fallegt útsýni.
Eldhúsið er opið í stofuna, falleg nýleg innrétting með steinborðplötu, ofn í vinnuhæð og nýju helluborði.
Sér geymsla og hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð. Sér inngangur er í íbúð að ofanverðu við húsið.
Bílastæði fyrir neðan hús.
Gólfefni: Fallegt ljóst parket og flísar.
Eignin er hin glæsilegasta sem vert er að skoða.www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.