Fasteignaleitin
Skráð 20. okt. 2026

Lækjarhjalli 22

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
277.1 m2
7 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
178.500.000 kr.
Fermetraverð
644.172 kr./m2
Brunabótamat
134.900.000 kr.
Byggt 1990
Sérinng.
Fasteignanúmer
20641328
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Eignamiðlun kynnir:

Mjög fallegt og vandað 277,1 fm einbýlishús með bílskúr við Lækjarhjalla 22 í suðurhlíðum Kópavogs. Húsið sem er á tveimur hæðum er einstaklega vel staðsett en það er innst í botnlangagötu og vestan við húsið er opið svæði. Stór, skjólsæll og gróinn garður er til suðurs. Arkitekt hússins er Benjamín Magnússon. Mjög mikil lofthæð er á efri hæð hússins og þakgluggar. Samkvæmt Fasteignaskrá er húsið skráð 277,1 fm en þar af er bílskúrinn skráður 28,2 fm. Hluti af rými á neðri hæð hússins er gluggalaus. Til eru teikningar frá árinu 2003 frá sama arkitekt sem gera ráð fyrir að settir séu gluggar og dyr á rýmið.

Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur hilmar@eignamidlun.is og Sverrir Kristinsson Lögg. fasteignasali, tölvupóstur sverrir@eignamidlun.is


Efri hæð:
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða og flísalagða forstofu með fatahengi.
Snyrting: Innaf forstofu er flísalögð snyrting með glugga.
Gangur: Frá forstofu er komið inn á gang. Gólf er flísalagt. Mjög mikil lofthæð er á gangi og þakgluggar. 
Eldhús: Rúmgott eldhús með fallegri sérsmíðaðri viðarinnréttingu. Borðplata er úr granít. Ofn og háfur úr stáli. Áfast lítið eldhúsborð.
Stofa: Gengið er niður nokkur þrep í stofuna. Fallegur horngluggi í stofu. Gólf í stofu er málað. Gengið er út í garð úr stofu.
Borðstofa: Gengið er í borðstofu frá gangi og eldhúsi. Gólf er flísalagt. Hægt er að ganga út í garð úr borðstofu.
Herbergi:  Rúmgott flísalagt herbergi með fallegum bogadregnum glugga. Herbergið getur nýst sem vinnuherbergi og/eða svefnherbergi.

Neðri hæð:
Hol/gangur: Steyptur flísalagður stigi er á milli hæða. Komið er í flísalagt hol. Gengið er út í garð frá gangi.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt og var yfirfarið og standsett fyrir ca fimm árum. Baðkar og sturta. Innrétting með granítborðplötu.
Herbergi I: Rúmgott hjónaherbergi með skápum. Linoleum dúkur á gófi. Stór gluggi að garði. 
Herbergi II: Bjart og fallegt herbergi sem hægt er að nýta sem vinnuherbergi eða svefnherbergi. Linoleum dúkur á gólfi.
Einnig eru  þrjú gluggalaus herbergi sem nýta má á ýmsan hátt. Rúmgóð rými sem væri hægt að nýta sem sjónvarpsherbergi, skrifstofa, tómstundaherbergi, fataherbergi, geymsla eða fyrir aðra sértæka starfsemi sem krefst næðis. Gengið er niður nokkur þep í eitt þeirra sem nýtt var sem vinnustudió. Rýmin eru gluggalaus en á samþykktum teikningum frá árinu 2003 er gert ráð fyrir gluggum og hurð út í garðinn. Síðasta teikningin í auglýsingu á vefnum sýnir neðri hæð með þeim breytingum sem hafa ekki farið fram.  Þá með þremur svefnherbergjum á neðri hæð. 
Þvottahús: Rúmgott þvottahús með góðri vinnuaðstöðu. Gólf er málað.

Bílskúr: 28,1 fm rúmgóður bílskúr með góðri lofthæð. Innangengt er í bílskúrinn frá gangi á efri hæð hússins. Sjálfvirkur hurðaopnari. Hiti er í hluta af bílaplani.

Mjög falleg og vönduð eign á eftirsóttum stað.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bræðratunga 13
3D Sýn
Skoða eignina Bræðratunga 13
Bræðratunga 13
200 Kópavogur
293,7 m2
Raðhús
1036
571 þ.kr./m2
167.700.000 kr.
Skoða eignina Logaland 28
Opið hús:01. nóv. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Logaland 28
Logaland 28
108 Reykjavík
217,3 m2
Raðhús
524
723 þ.kr./m2
157.000.000 kr.
Skoða eignina Fagrihjalli 100
Opið hús:02. nóv. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Fagrihjalli 100
Fagrihjalli 100
200 Kópavogur
186,8 m2
Raðhús
624
776 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Skógargerði 2
Skoða eignina Skógargerði 2
Skógargerði 2
108 Reykjavík
112 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
847 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin