Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsileg ný og fullbúin íbúð við Holtsveg 55 í Garðabæ. Íbúð 203 er 4ra herbergja og skráð 115,9fm ásamt 20,7fm suðvestur svölum og stæði í lokaðri bílageymslu merkt B05. Íbúð 203 skiptist í forstofu/anddyri, eldhús og stofu, 3 svefnherbergi og baðherbergi með aðskyldu þvottarými og geymslu innan íbúðar. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign. Íbúðirnar afhendast fullfrágengnar með gólfefnum. Um er að ræða 17 íbúða lyftuhús með 3ja, 4ra og 5 herbergja íbúðum. Fjórum íbúðum fylgir bílskúr og 5 íbúðum fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Mjög fallegt hús klætt að utan með flísum og með stórum svölum með glerhandriði og eða veröndum á jarðhæð. Frábært útsýni og göngufæri í skóla, leikskóla og fallega náttúru.
Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is Nánari lýsing: Um er að ræða nýbyggingu við Holtsveg 55 í Garðabæ. Skilalýsing seljanda gildir en í henni kemur meðal annars fram: Íbúðirnar afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum og hurðum frá Parka og harðparketi frágengið á íbúðargólf einnig frá Parka en á votrýmum verða flísar. Rúmgóðar svalir með glerhandriði eru út frá stofu íbúða á efri hæðum. Sérafnotasvæði er út af stofu með íbúðum á jarðhæð. Húsið er hitað með ofnalögnum nema íbúðir á efstuhæð, þar er gólfhiti með anydrít ásteypulagi og lýsing innfelld á efstuhæð.
Raflagnir eru lagðar og skilað með perustæði í öllum rýmum nema á baði og eldhúsi þar er loftljós.
Heimilistæki: Eldavél, háfur og ofn er frá AEG. Hreinlætistæki: Eru frá Tengi.
Gólf á bað og þvottahúsum eru flísalögð með flísum frá Parka.
Á baðherbergi verður sturta, flísalagður sturtubotn og með sturtuhlið úr gleri þar sem við á. Blöndunartæki eru utanáliggjandi og salerni er upphengt. Þrír veggir á baðherbergjum eru flísalagðir og aðrir veggir í íbúðunum málaðir. Vélknúin loftræsting í aflokuðum rýmum.
Húsbyggjandi: H55 ehf
Aðalverktaki: Verkland ehf
Aðalhönnuður: Kristinn Ragnarsson
Verkfræðihönnun: New nordic Engineering
Raflagnahönnun: Voltorka ehf
Umhverfið: Betri staðsetning á höfuðborgarsvæðinu fyrir náttúruunnendur og útivistarfólk er vandfundin. Urriðaholt liggur við friðlandið í Heiðmörk sem er stærsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og er tengt beint við það með göngu- og hjólastígum. Glæsilegir golfvellir, vötn og hæðir umlykja svæðið. Góðar samgöngæðar tengja svo hverfið við alla staði borgarinnar. í göngufæri er svo Urriðaholtsskóli sem starfar á tveimur skólastigum, bæði á leik- og grunnskólastigi.
Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald, þegar það verður lagt á. Skipulagsgjald er 0,3% af brunabótamati íbúðar.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar má finna á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 74.900.-